Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hversu langt er síðan síðasta eldgos var á Íslandi?

HMS

Þegar þetta er skrifað í lok september 2006 eru tæp tvö ár liðin frá síðasta eldgosi á Íslandi. Það var eldgos í Grímsvötnum í Vatnajökli sem hófst 1. nóvember 2004.

Aðdragandi gossins var alllangur þar sem sívaxandi skjálftavirkni mældist á svæðinu allt frá miðju ári 2003. Jökulhlaup hófst svo 30. október 2004 og hækkaði þá í Skeiðará. Mikil skjálftahrina varð 1. nóvember um klukkan 20, og skömmu síðar var send út viðvörun til almannavarna um að farið gæti að gjósa von bráðar. Gos hófst svo síðar um kvöldið og stóð í um viku.


Grímsvatnagosið 2004.

Grímsvötn eru ein virkasta eldstöð Íslands, ásamt Heklu og Kötlu. Sigurður Steinþórsson segir í svari sínu við spurningunni Hvaða eldfjall hefur gosið mest? að Grímsvötn hafi líklega gosið oftar en 30 sinnum á síðustu 400 árum.

Frekara lesefni á Vísindavefnum

Heimildir og mynd


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Heiða María Sigurðardóttir

prófessor við Sálfræðideild

Útgáfudagur

29.9.2006

Spyrjandi

Ingi Steinn Guðmundsson, f. 1996

Tilvísun

HMS. „Hversu langt er síðan síðasta eldgos var á Íslandi?“ Vísindavefurinn, 29. september 2006. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=6221.

HMS. (2006, 29. september). Hversu langt er síðan síðasta eldgos var á Íslandi? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=6221

HMS. „Hversu langt er síðan síðasta eldgos var á Íslandi?“ Vísindavefurinn. 29. sep. 2006. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=6221>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hversu langt er síðan síðasta eldgos var á Íslandi?
Þegar þetta er skrifað í lok september 2006 eru tæp tvö ár liðin frá síðasta eldgosi á Íslandi. Það var eldgos í Grímsvötnum í Vatnajökli sem hófst 1. nóvember 2004.

Aðdragandi gossins var alllangur þar sem sívaxandi skjálftavirkni mældist á svæðinu allt frá miðju ári 2003. Jökulhlaup hófst svo 30. október 2004 og hækkaði þá í Skeiðará. Mikil skjálftahrina varð 1. nóvember um klukkan 20, og skömmu síðar var send út viðvörun til almannavarna um að farið gæti að gjósa von bráðar. Gos hófst svo síðar um kvöldið og stóð í um viku.


Grímsvatnagosið 2004.

Grímsvötn eru ein virkasta eldstöð Íslands, ásamt Heklu og Kötlu. Sigurður Steinþórsson segir í svari sínu við spurningunni Hvaða eldfjall hefur gosið mest? að Grímsvötn hafi líklega gosið oftar en 30 sinnum á síðustu 400 árum.

Frekara lesefni á Vísindavefnum

Heimildir og mynd


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....