Sólin Sólin Rís 05:43 • sest 21:13 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:37 • Sest 06:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:59 • Síðdegis: 15:47 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:39 • Síðdegis: 21:50 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað þýðir orðið mæra og í hvaða merkingu er það notað hér á landi?

Guðrún Kvaran

Orðið mæra getur verið nafnorð og sögn. Ef það er notað sem nafnorð er merkingin ‛ögn, smá biti af einhverju’, til dæmis um sælgætismola, ávaxtabita eða þess háttar en einnig um smákekki í ystri mjólk. Heimildir um nafnorðið eru til allt frá 18. öld.

Nafnorðið mæra merkir lítill biti af einhverju, til dæmis konfektmoli.

Sögnin að mæra er eldri og þekkist þegar í fornu máli. Hún merkir að ‛lofa einhvern, hrósa einhverjum’ og er skyld nafnorðinu mærð ‛lof, lofkvæði’ og lýsingarorðinu mær ‛ágætur, frægur’. Öll hafa þessi þrjú orð tengsl við samsvarandi orð í öðrum germönskum málum eins og fornensku og fornháþýsku.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

9.11.2012

Spyrjandi

Lilja Kristjánsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðið mæra og í hvaða merkingu er það notað hér á landi?“ Vísindavefurinn, 9. nóvember 2012. Sótt 18. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=62656.

Guðrún Kvaran. (2012, 9. nóvember). Hvað þýðir orðið mæra og í hvaða merkingu er það notað hér á landi? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=62656

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðið mæra og í hvaða merkingu er það notað hér á landi?“ Vísindavefurinn. 9. nóv. 2012. Vefsíða. 18. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=62656>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...