Sólin Sólin Rís 08:47 • sest 17:36 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:12 • Sest 17:57 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 11:42 • Síðdegis: 24:27 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 05:08 • Síðdegis: 18:15 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaðan kemur orðið nýlenduvöruverslun?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Að baki orðsins nýlenduvöruverslun liggur danska orðið kolonialhandel, ‘verslun með vörur frá nýlendum’. Koloni í dönsku merkir ‘nýlenda’ og vörur, einkum ávextir og krydd og önnur matvara en einnig aðrar vörur, sem fluttar voru til Danmerkur frá nýlendunum voru nefndar kolonialvarer, það er ‘nýlenduvörur’.

Dönsk 'kolonialhandel'.

Þegar innflutningur á vörum frá Danmörku til Íslands jókst á 19. öld, þar á meðal alls kyns matvöru svo sem kryddi og þurrkuðum ávöxtum, var íslenska heitið nýlenduvara notað sem þýðing á danska orðinu kolonialvare. Verslunin fékk síðan nafn af þeim vörum sem hún seldi, það er nýlenduvöruverslun.

Mynd: Søndersø Kommune

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

24.10.2006

Spyrjandi

Reynir Björnsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið nýlenduvöruverslun?“ Vísindavefurinn, 24. október 2006, sótt 24. október 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=6332.

Guðrún Kvaran. (2006, 24. október). Hvaðan kemur orðið nýlenduvöruverslun? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=6332

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið nýlenduvöruverslun?“ Vísindavefurinn. 24. okt. 2006. Vefsíða. 24. okt. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=6332>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...