Sólin Sólin Rís 08:47 • sest 17:36 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:12 • Sest 17:57 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 11:42 • Síðdegis: 24:27 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 05:08 • Síðdegis: 18:15 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er þetta „trútt“ sem þú getur um talað?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Orðmyndin trútt í orðasambandinu að geta trútt um talað er hvorugkyn lýsingarorðsins trúr ‘dyggur, tryggur, öruggur, áreiðanlegur’. Hún er í orðasambandinu notuð sem atviksorð. Merking atviksorðsins er ‘trúverðuglega’, það er unnt er að trúa því sem sagt er.

Hægt væri að segja: ,,Verkfræðingurinn gat trútt um talað þar sem hann hafði góða reynslu af sambærilegum verkum”, það er hann gat talað þannig um verkið að auðvelt var að trúa því sem hann sagði vegna reynslu hans. Algengara er þó að nota orðasambandið í háði: ,,Ja, þú getur trútt um talað” og er þá ósagt: ,,eða hitt þó heldur” eða eitthvað í þá veru.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

24.4.2007

Spyrjandi

Arnór Bjarki, f. 1990

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er þetta „trútt“ sem þú getur um talað?“ Vísindavefurinn, 24. apríl 2007, sótt 24. október 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=6605.

Guðrún Kvaran. (2007, 24. apríl). Hvað er þetta „trútt“ sem þú getur um talað? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=6605

Guðrún Kvaran. „Hvað er þetta „trútt“ sem þú getur um talað?“ Vísindavefurinn. 24. apr. 2007. Vefsíða. 24. okt. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=6605>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað er þetta „trútt“ sem þú getur um talað?
Orðmyndin trútt í orðasambandinu að geta trútt um talað er hvorugkyn lýsingarorðsins trúr ‘dyggur, tryggur, öruggur, áreiðanlegur’. Hún er í orðasambandinu notuð sem atviksorð. Merking atviksorðsins er ‘trúverðuglega’, það er unnt er að trúa því sem sagt er.

Hægt væri að segja: ,,Verkfræðingurinn gat trútt um talað þar sem hann hafði góða reynslu af sambærilegum verkum”, það er hann gat talað þannig um verkið að auðvelt var að trúa því sem hann sagði vegna reynslu hans. Algengara er þó að nota orðasambandið í háði: ,,Ja, þú getur trútt um talað” og er þá ósagt: ,,eða hitt þó heldur” eða eitthvað í þá veru. ...