Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hver er uppruni orðsins lygamörður?

Guðrún Kvaran

Mörður sá sem átt er við er Mörður Valgarðsson sem kemur mikið við sögu í Njáls sögu. Þar segir um hann: „Þá er hann var fullkominn að aldri, var hann illa til frænda sinna og einna verst til Gunnars. Hann var slægur maður í skaplyndi, en illgjarn í ráðum.“ Ekki var allt heilagur sannleikur sem hann lét sér um munn fara.

Síðar varð lygamörður samheiti sem notað er um þann sem lýgur miklu og er undirförull. Orðabók Háskólans á elst dæmi um þá notkun frá fyrri hluta 20. aldar.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

17.7.2000

Spyrjandi

Gísli Gíslason

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni orðsins lygamörður?“ Vísindavefurinn, 17. júlí 2000. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=666.

Guðrún Kvaran. (2000, 17. júlí). Hver er uppruni orðsins lygamörður? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=666

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni orðsins lygamörður?“ Vísindavefurinn. 17. júl. 2000. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=666>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hver er uppruni orðsins lygamörður?
Mörður sá sem átt er við er Mörður Valgarðsson sem kemur mikið við sögu í Njáls sögu. Þar segir um hann: „Þá er hann var fullkominn að aldri, var hann illa til frænda sinna og einna verst til Gunnars. Hann var slægur maður í skaplyndi, en illgjarn í ráðum.“ Ekki var allt heilagur sannleikur sem hann lét sér um munn fara.

Síðar varð lygamörður samheiti sem notað er um þann sem lýgur miklu og er undirförull. Orðabók Háskólans á elst dæmi um þá notkun frá fyrri hluta 20. aldar....