Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hver er uppruni, aldur og merking orðsins "kverúlant"?

Guðrún Kvaran

Orðið kverúlant er dönsk sletta en í dönsku er kværulant notað um þann sem er kvartsár og aðfinnslusamur. Það á rætur að rekja til latínu en sögnin qveror merkir að ‘kvarta yfir einhverju’ og nafnorðið qverulus er notað um þann sem kvartar.

Í ritmálssafni Orðabókar Háskólans er nú aðeins eitt dæmi um kverúlant, úr Speglinum frá 1932, og annað um kverulant, án kommu yfir -u- úr bók eftir Auði Haralds frá 1979. Kverúlant er meira notað í töluðu máli en rituðu.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

15.8.2007

Spyrjandi

Ásgeir Ingvarsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni, aldur og merking orðsins "kverúlant"?“ Vísindavefurinn, 15. ágúst 2007. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=6758.

Guðrún Kvaran. (2007, 15. ágúst). Hver er uppruni, aldur og merking orðsins "kverúlant"? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=6758

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni, aldur og merking orðsins "kverúlant"?“ Vísindavefurinn. 15. ágú. 2007. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=6758>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hver er uppruni, aldur og merking orðsins "kverúlant"?
Orðið kverúlant er dönsk sletta en í dönsku er kværulant notað um þann sem er kvartsár og aðfinnslusamur. Það á rætur að rekja til latínu en sögnin qveror merkir að ‘kvarta yfir einhverju’ og nafnorðið qverulus er notað um þann sem kvartar.

Í ritmálssafni Orðabókar Háskólans er nú aðeins eitt dæmi um kverúlant, úr Speglinum frá 1932, og annað um kverulant, án kommu yfir -u- úr bók eftir Auði Haralds frá 1979. Kverúlant er meira notað í töluðu máli en rituðu....