Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Íslenskt stjörnukort fyrir byrjendur í stjörnuskoðun

Ritstjórn Vísindavefsins

Á Stjörnufræðivefnum er hægt að nálgast íslenskt stjörnukort ásamt leiðarvísi fyrir byrjendur í stjörnuskoðun. Kortið miðast við himininn yfir Íslandi eins og hann lítur út á milli níu og tíu á kvöldin í september. Á vefnum er einnig stjörnukort af himninum sem uppfærist í rauntíma.

Á meðal þess sem hægt er að sjá í september er reikistjarnan Júpíter en hún er bjartasta stjarnan á kvöldhimninum. Undanfarin ár hefur Júpíter verið mjög sunnarlega á himninum og þess vegna varla sést frá Íslandi. Núna er hann hins vegar vel greinilegur og mun sjást enn betur á næstu árum.

Mynd af rauða blettinum á Júpíter sem Galíleó-könnunarfarið tók
27. ágúst 1996.

Skömmu eftir sólarlag kemur Karlsvagninn í ljós á vesturhimni. Hann er sennilega það stjörnumynstur sem flestir þekkja á næturhimninum.

Fræðist meira um stjörnur á himninum yfir Íslandi í septembermánuði á Stjörnufræðivefnum

Mynd:
  • APOD. Sótt 31.8.2011.

Útgáfudagur

31.8.2009

Spyrjandi

Ritstjórn

Efnisorð

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Íslenskt stjörnukort fyrir byrjendur í stjörnuskoðun.“ Vísindavefurinn, 31. ágúst 2009. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=70807.

Ritstjórn Vísindavefsins. (2009, 31. ágúst). Íslenskt stjörnukort fyrir byrjendur í stjörnuskoðun. Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=70807

Ritstjórn Vísindavefsins. „Íslenskt stjörnukort fyrir byrjendur í stjörnuskoðun.“ Vísindavefurinn. 31. ágú. 2009. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=70807>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...