Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Svar við gátu: Musteri viskunnar

Ritstjórn Vísindavefsins

Við skulum byrja á því að nefna rauðar kúlur R, grænar kúlur G og bláar kúlur B. Við vitum að samanlagður fjöldi glerkúlnanna er 60. Við fáum þá:

R + B + G = 60 (Jafna 1)

Auk þess eru fjórum sinnum fleiri rauðar kúlur en grænar kúlur en það gefur okkur:

R = 4G (Jafna 2)

Enn fremur eru 6 fleiri bláar kúlur en grænar kúlur en það gefur okkur:

B = G + 6 (Jafna 3)

Með þetta í huga getum við notað innsetningu og sett bæði R og B í jöfnum 2 og 3 inn fyrir R og B í jöfnu 1. Þá fæst:

4G + G + (G + 6) = 60

við fellum svo sviga og tökum saman eins liði:

6G = 54

En það gefur okkur að:

G = 9.

Nú vitum við að G = 9 en samkvæmt jöfnu 2 er R = 4G = 4 * 9 = 36 og samkvæmt jöfnu 3 er B = G + 6 = 9 + 6 = 15.

Það eru þannig 9 grænar kúlur, 36 rauðar kúlur og 15 bláar kúlur.
Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=