Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Vísindavefurinn hlýtur styrk úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar

Ritstjórn Vísindavefsins

Vísindavefurinn hlaut hæsta styrkinn úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar í ár, alls 1,2 milljónir. Styrkurinn nýtist til miðlunar fróðleiks um vísindi til almennings og aukinnar fræðslu um orkumál. Auk Vísindavefsins hlutu 8 önnur verkefni styrk úr sjóðinum en heildarúthlutun nam 4 milljónum króna. Sjá enn fremur: Níu verkefni hljóta styrk úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar.

Vísindavefur Háskóla Íslands hefur starfað frá árinu 2000 og notið mikilla vinsælda. Á vefnum er að finna þúsundir svara við spurningum almennings um allt milli himins og jarðar, allt frá stjörnufræði til handrita og frá sameindalíffræði til sálarfræði. Duglegustu spyrjendurnir eru yfirleitt á aldrinum 10-20 ára.

Landsvirkjun er stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi en á myndinni má sjá Búrfellsstöð.

Vísindavefurinn hefur reynslu af fjölbreyttu starfi sem tengist vísindamiðlun, til dæmis námskeiðahaldi um vísindi fyrir fjölskyldur, bókaútgáfu um vísindi, en þar mætti nefna bókina Af hverju gjósa fjöll?, og gerð vísindadagatals, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar. Fyrirtækið vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli og jarðvarma. Landsvirkjun vinnur 73% allrar raforku í landinu og er stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi. Landsvirkjun er leiðandi í sjálfbærri nýtingu orkugjafa og leggur áherslu á að stuðla að aukinni þekkingu, nýsköpun og tækniþróun.

Mynd:

Útgáfudagur

28.6.2012

Spyrjandi

Ritstjórn

Efnisorð

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Vísindavefurinn hlýtur styrk úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar.“ Vísindavefurinn, 28. júní 2012. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=70906.

Ritstjórn Vísindavefsins. (2012, 28. júní). Vísindavefurinn hlýtur styrk úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar. Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=70906

Ritstjórn Vísindavefsins. „Vísindavefurinn hlýtur styrk úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar.“ Vísindavefurinn. 28. jún. 2012. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=70906>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...