Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Stórvirkið Náttúruvá á Íslandi komið út

Ritstjórn Vísindavefsins

Nýlega var gefið út glæsilegt rit sem lesendur Vísindavefsins hafa örugglega áhuga á. Bókin heitir Náttúruvá á Íslandi: Eldgos og jarðskjálftar og er bæði fræðirit fyrir almenning og uppsláttarrit fyrir vísindamenn. Greint er frá eðli þessara náttúrufyrirbæra og þeirri vá sem af þeim stafar.

Margir helstu sérfræðingar landsins hafa lagt til efni í bókina, en höfundar eru nærri 60 talsins. Fyrir utan ítarlega umfjöllun á eldvirkni og jarðskjálftum sem hafa valdið okkur þungum búsifjum gegnum tíðina, er sagt frá nýjustu rannsóknum í jarðvísindum og jarðskjálftafræði sem tengjast Íslandi. Bókin er þannig einstakt yfirlit yfir þekkingu okkar á þessum þáttum íslenskrar náttúru.

Júlíus Sólnes, fyrir miðju, er aðalritstjóri bókarinnar, ritstjóri eldgosahluta er Freysteinn Sigmundsson, til vinstri, og jarðskjálftahluta Bjarni Bessason.

Aðalritstjóri bókarinnar er Júlíus Sólnes, fyrrverandi prófessor og umhverfisráðherra. Ritstjóri eldgosahluta er Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur á Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, og jarðskjálftahluta Bjarni Bessason, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands.

Bókin, sem er gefin út af Viðlagatryggingu Íslands í samvinnu við Háskólaútgáfuna, er 786 bls. Í henni eru nærri 1000 ljósmyndir, kort og skýringarmyndir.

Náttúruvá á Íslandi er án efa eitt ítarlegasta og efnismesta rit um eldvirkni og jarðskjálfta á Íslandi sem gefið hefur verið út, frá því að Þorvaldur Thoroddsen skrifaði bækur sínar um sama efni fyrir hartnær 100 árum.

Útgáfudagur

30.1.2013

Spyrjandi

Ritstjórn

Efnisorð

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Stórvirkið Náttúruvá á Íslandi komið út.“ Vísindavefurinn, 30. janúar 2013. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=70931.

Ritstjórn Vísindavefsins. (2013, 30. janúar). Stórvirkið Náttúruvá á Íslandi komið út. Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=70931

Ritstjórn Vísindavefsins. „Stórvirkið Náttúruvá á Íslandi komið út.“ Vísindavefurinn. 30. jan. 2013. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=70931>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...