Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Er götuheitið Laugavegur alltaf skrifað þannig og af hverju dregur gatan nafn sitt?

Hallgrímur J. Ámundason

Laugavegurinn liggur úr miðbænum inn í Laugardal. Hann tekur við af Bankastræti (sem áður hét Bakarastígur eða Bakarabrekka) og stefnir austur á bóginn. Neðsti hluti Laugavegar hét áður Vegamótastígur en þá lá gatan ekki nema skammt upp holtið. Bæjarstjórnin í Reykjavík ákvað 1885 að hefja skyldi vegarlagningu inn í Þvottalaugar. Markmiðið var auðvitað að auðvelda fólki þvottaleiðangrana. Með tímanum varð gatan mesta umferðargatan í bænum og einnig mesta verslunargatan. Um 1900 var Laugavegur langfjölmennasta gatan í bænum með yfir 700 íbúa.

Laugavegur í Reykjavík.

Laugavegurinn í Reykjavík dregur nafn sitt af Þvottalaugunum í Laugardal. Venja er að skrifa götuheitið Laugavegur, án -r-. Það er þó ekki einleikið og oft verður vart ruglings. Þannig er munur á nöfnunum Laugavegur og Laugardalur þótt heitin séu kennd við sama fyrirbærið.

Menn hafa einnig deilt um hvort væri réttara eignarfall Laugavegar eða Laugavegs. Hvorttveggja má til sanns vegar færa. Það er löng hefð fyrir því að segja og rita Laugavegs og engin ástæða til að forðast slíkt. Talin dæmi á ctimarit.is benda eindregið til þess og einnig samsetningar eins og Laugavegsapótek eða Laugavegssamtökin.

Vegir kenndir við laug eða laugar eru á fleiri stöðum á landinu. Á Siglufirði er Laugarvegur. Hann liggur suður úr bænum (tekur við af Hverfisgötu) og nær langleiðina að gamalli sundlaug sem er rétt sunnan við götuna Norðurtún, nálægt sjónum innarlega í firðinum. Sundlaug var byggð þar að frumkvæði ungmennafélagsins á staðnum og lærðu margir að troða marvaðann þar. Laugin er löngu komin úr notkun enda er nýrri laug inni í bænum.

Gönguleiðin milli Landmannalauga og Þórsmerkur kallast Laugavegur.

Laugavegur er einnig til uppi til fjalla á Íslandi. Gönguleiðin úr Landmannalaugum suður í Þórsmörk hefur verið kölluð Laugavegurinn nú um áratuga skeið og er orðið fast í sessi. Önnur gönguleið á þessum slóðum hefur stundum verið kölluð Hverfisgatan og liggur frá Hólaskjóli suðvestur í Hvanngil eða Þórsmörk. Þessi Hverfisgata sameinast Laugaveginum neðarlega rétt eins og samnefnd gata í Reykjavík.

Myndir:

Þetta svar hefur einnig birst sem pistill á vef Stofnunar Árna Magnússonar og er birt hér með góðfúslegu leyfi.

Höfundur

Hallgrímur J.  Ámundason

fyrrverandi verkefnisstjóri nafnfræðisviðs á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Útgáfudagur

5.2.2016

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Hallgrímur J. Ámundason. „Er götuheitið Laugavegur alltaf skrifað þannig og af hverju dregur gatan nafn sitt?“ Vísindavefurinn, 5. febrúar 2016. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=71595.

Hallgrímur J. Ámundason. (2016, 5. febrúar). Er götuheitið Laugavegur alltaf skrifað þannig og af hverju dregur gatan nafn sitt? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=71595

Hallgrímur J. Ámundason. „Er götuheitið Laugavegur alltaf skrifað þannig og af hverju dregur gatan nafn sitt?“ Vísindavefurinn. 5. feb. 2016. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=71595>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...