Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver er uppruni íslenska hestsins?

JGÞ

Íslenski hesturinn er kominn frá Noregi og þaðan frá Mongólíu. Þetta kemur fram í ýtarlegu svari Stefáns Aðalsteinssonar við spurningunni Hvaðan er íslenski hesturinn upprunninn?

Íslenskur hestur í haga.

Sameindalíffræðilegar rannsóknir hafa sýnt fram á þennan skyldleika og hann kemur líklega ekki á óvart ef við höfum í huga að flestir landnámsmenn komu frá vesturhluta Noregs. Þeir Keltar sem hingað komu fluttu líklega ekki með sér búfénað. Bæði er lengri sigling frá Írlandi til Íslands en frá Noregi og eins voru margir Keltar sem hingað komu ánauðugir og áttu þá ekki hesta.

Hægt er að lesa meira um íslenska hestinn í svari við spurningunni Hvernig varð íslenski hesturinn til?

Mynd:

Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

6.3.2008

Spyrjandi

Katrín Ása Karlsdóttir, f. 1995

Tilvísun

JGÞ. „Hver er uppruni íslenska hestsins?“ Vísindavefurinn, 6. mars 2008, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=7187.

JGÞ. (2008, 6. mars). Hver er uppruni íslenska hestsins? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=7187

JGÞ. „Hver er uppruni íslenska hestsins?“ Vísindavefurinn. 6. mar. 2008. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=7187>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hver er uppruni íslenska hestsins?
Íslenski hesturinn er kominn frá Noregi og þaðan frá Mongólíu. Þetta kemur fram í ýtarlegu svari Stefáns Aðalsteinssonar við spurningunni Hvaðan er íslenski hesturinn upprunninn?

Íslenskur hestur í haga.

Sameindalíffræðilegar rannsóknir hafa sýnt fram á þennan skyldleika og hann kemur líklega ekki á óvart ef við höfum í huga að flestir landnámsmenn komu frá vesturhluta Noregs. Þeir Keltar sem hingað komu fluttu líklega ekki með sér búfénað. Bæði er lengri sigling frá Írlandi til Íslands en frá Noregi og eins voru margir Keltar sem hingað komu ánauðugir og áttu þá ekki hesta.

Hægt er að lesa meira um íslenska hestinn í svari við spurningunni Hvernig varð íslenski hesturinn til?

Mynd:

Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....