Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Orðin "The Big Apple" eða "stóra eplið" voru upphaflega notuð um veðhlaupabrautina í New Orleans í Louisiana í Bandaríkjunum en hún var mesta veðhlaupabraut Bandaríkjanna snemma á 3. áratug aldarinnar. Jazztónlistarmenn sem áttu margir rætur að rekja til borgarinnar tóku orðin upp og létu þau vísa til Harlem-hverfis í New York sem var höfuðstaður jazzins. Á þriðja og fjórða áratugnum var dansinn "The Big Apple" gríðarvinsæll í Harlem. Orðin voru ekki notuð um New York fyrr en árið 1971 þegar þau voru tekin upp í tilefni af því að hressa átti upp á ímynd New York og efla ferðaþjónustu.
Heimild um þetta svar var heimasíða Steven Morgan Friedman en þar er einnig að finna ýmsan annan fróðleik um algeng orð í alþjóðamáli.
Mynd: HB
SIV. „Hvers vegna er New York stundum kölluð "The Big Apple"?“ Vísindavefurinn, 9. ágúst 2000, sótt 28. október 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=754.
SIV. (2000, 9. ágúst). Hvers vegna er New York stundum kölluð "The Big Apple"? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=754
SIV. „Hvers vegna er New York stundum kölluð "The Big Apple"?“ Vísindavefurinn. 9. ágú. 2000. Vefsíða. 28. okt. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=754>.