Hvers vegna eru göturnar með svona djúpum hjólförum í vetur? Hefur þetta eitthvað að gera með hlýnun jarðar, minna frost á veturna?Hjólför myndast í vegum og götum af tveimur ástæðum, annars vegar vegna áraunar þungra öxla og hins vegar vegna nagladekkjaslits minni bíla. Á höfuðborgarsvæðinu eru flestir vegir og götur malbikuð. Á sumrin hitnar malbikið og verður þjálla (mýkra). Í hvert sinn sem þungur bíll ekur eftir veginum við þannig aðstæður getur vegyfirborðið því varanlega þjappast örlítið saman. Þessi samþjöppun safnast saman og þannig myndast hjólför með tímanum. Á heitum sólríkum sumardögum er þessi gerð hjólfaramyndunar meiri en þegar skýjað er og lofthiti lægri. Þannig eykur hlýrra veðurfar á sumrin hjólfaramyndun af völdum þungu bílanna. Á veturna er malbikslagið hins vegar kalt og þessi varanlega þjöppun þungu bílanna tiltölulega lítil. Á þessum árstíma er hins vegar töluvert um að minni bílar séu á nagladekkjum. Þegar ekið er eftir veginum á negldum dekkjum lemja naglarnir stöðugt vegyfirborðið og brjóta steinefnið smám saman niður. Nagldekkjaslitið er háð ýmsum þáttum svo sem ökuhraða, þyngd bíla, hvort vegyfirborðið er blautt eða þurrt, hvort yfirborðið er saltað eða ekki, hvort það er þakið snjó eða ís eða er bert. Það leiðir af sjálfu sér að slit vegna nagladekkja er minna á þeim landsvæðum þar sem snjóþekja er að jafnaði viðvarandi stóran hluta vetrar heldur en til dæmis á höfuðborgarsvæðinu.

Hjólför myndast í vegum og götum af tveimur ástæðum, annars vegar vegna áraunar þungra öxla og hins vegar vegna nagladekkjaslits minni bíla.
- Yfirlitsmynd: Úr safni höfundar.
- Varasamir vegir á Vesturlandi - RÚV.is. (Sótt 16.02.2026).