Sólin Sólin Rís 08:33 • sest 17:51 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 17:22 • Sest 25:13 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:26 • Síðdegis: 14:14 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:38 • Síðdegis: 20:48 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða heimildir og frásagnir eru til um innreið múslima á Íberíuskaga?

Þórir Jónsson Hraundal

Heimildir um innreið múslima á Íberíuskaga í upphafi 8. aldar eru fáar, og flestar frásagnir af henni má finna í verkum sem voru skrifuð nokkrum öldum eftir að atburðirnir áttu sér stað. Tvö verk, skrifuð á arabísku í Al-Andalus á 10. öld, innihalda heildstæðustu lýsingarnar. Annars vegar er nafnlaust verk, Akhbar al-Majmu'a (Safn frásagna), sem líklega var tekið saman um 940. Hitt verkið er Ta'rikh iftitah al-Andalus (Saga landvinninganna í Al-Andalus) sem Ibn al-Qutiyya ritaði líklega um miðja 10. öld. Einnig er vert að nefna verkið Al-Muqtabis fī Ta'rīkh Rijāl al-Andalus (Umfjöllun um sögu manna í Al-Andalus) sem Ibn Hayyan skrifaði á 11. öld.

Þessi þrjú rit bera öll keim af stjórnmálaástandi síns tíma, og þeim er aukinheldur fremur ætlað að setja fram líflegar og áhugaverðar sögur en að útlista atburði á nákvæman hátt í réttri röð. Engu að síður er margt í þessum verkum nýtilegt, enda hafði arabísk sagnaritunarhefð tekið miklum framförum á 9. og 10. öld, og sífellt var gerð meiri krafa um fagleg vinnubrögð og heilindi gagnvart eldri textum.

Auk arabískra texta hafa varðveist nokkrar heimildir á latínu.[1] Eðli málsins samkvæmt er sjónarhorn kristinna ólíkt sjónarhorni arabískra sagnaritara, og að þeirra mati var innreið múslima á Íberíuskaga mikið áfall. Mikilvægastar þessara heimilda eru hinir svokölluðu Mozarabísku annálar frá 754.[2] Vægi þeirra felst annars vegar í því að þeir voru skrifaðir skömmu eftir atburðina, og hins vegar í því að þeir staðfesta í megindráttum vitnisburð arabísku heimildanna.

Tilvísanir:
  1. ^ Gott safn frumheimilda í enskri þýðingu má finna í Medieval Iberia: Readings from Christian, Muslim, and Jewish Sources eftir Oliviu Remie Consable, 2012.
  2. ^ Mozarabar (arab. musta'arab, eiginlega sá/sú sem er búið að arabísera, gera menningarlega arabíska/n voru kristið fólk í Al-Andalus sem tileinkaði sér arabískt tungumál og menningu. Þau fengu að halda trú sinni en greiddu svokallaðan jizya-skatt eins og tíðkaðist víðar þar sem múslimar réðu ríkjum. Einungis iðkendur abrahamískra trúarbragða, þ.e. kristnir og gyðingar, gátu notið slíkrar stöðu, sem á arabísku kallast dhimmi.

Mynd:

Höfundur

Þórir Jónsson Hraundal

lektor í Mið-Austurlandafræðum við HÍ

Útgáfudagur

20.10.2026

Spyrjandi

Katrín

Tilvísun

Þórir Jónsson Hraundal. „Hvaða heimildir og frásagnir eru til um innreið múslima á Íberíuskaga?“ Vísindavefurinn, 20. október 2026, sótt 20. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89761.

Þórir Jónsson Hraundal. (2026, 20. október). Hvaða heimildir og frásagnir eru til um innreið múslima á Íberíuskaga? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89761

Þórir Jónsson Hraundal. „Hvaða heimildir og frásagnir eru til um innreið múslima á Íberíuskaga?“ Vísindavefurinn. 20. okt. 2026. Vefsíða. 20. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89761>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...