Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað skiptast indóevrópsk tungumál í marga flokka?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Vaninn er að skipta indóevrópskum málum í tvo yfirflokka, svokölluð kentum-mál og satem-mál, en þessum flokkum aftur í alls ellefu undirflokka. Kentum og satem draga nafn af því hvort orðið 'hundrað' hafði lokhljóðið c (k) í framstöðu, sbr. latínu centum 'hundrað' eða önghljóðið s, sbr. indversku satám 'hundrað'.

Til kentum-mála teljast germönsk mál, keltnesk mál, ítalísk mál, gríska, anatólísk mál og tokkaríska.

Til satem mála teljast: slavnesk mál, baltnesk mál, albanska, armenska, indó-írönsk mál.

Sjá að öðru leyti svar sama höfundar við spurningunni Hvaða mál eru germönsk, rómönsk og slavnesk?

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

29.9.2000

Spyrjandi

Kristján Heiðar Jóhannsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað skiptast indóevrópsk tungumál í marga flokka?“ Vísindavefurinn, 29. september 2000, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=950.

Guðrún Kvaran. (2000, 29. september). Hvað skiptast indóevrópsk tungumál í marga flokka? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=950

Guðrún Kvaran. „Hvað skiptast indóevrópsk tungumál í marga flokka?“ Vísindavefurinn. 29. sep. 2000. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=950>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað skiptast indóevrópsk tungumál í marga flokka?
Vaninn er að skipta indóevrópskum málum í tvo yfirflokka, svokölluð kentum-mál og satem-mál, en þessum flokkum aftur í alls ellefu undirflokka. Kentum og satem draga nafn af því hvort orðið 'hundrað' hafði lokhljóðið c (k) í framstöðu, sbr. latínu centum 'hundrað' eða önghljóðið s, sbr. indversku satám 'hundrað'.

Til kentum-mála teljast germönsk mál, keltnesk mál, ítalísk mál, gríska, anatólísk mál og tokkaríska.

Til satem mála teljast: slavnesk mál, baltnesk mál, albanska, armenska, indó-írönsk mál.

Sjá að öðru leyti svar sama höfundar við spurningunni Hvaða mál eru germönsk, rómönsk og slavnesk?...