Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Hverjar eru helstu fornleifar í Garðabæ?

Ragnheiður Traustadóttir

Áður en þessu er svarað er rétt að gera grein fyrir því að land Garðabæjar er mjög víðfemt og teygir sig meðal annars út á Álftanes og langt inn í Heiðmörk. Fornleifar finnast á öllu þessu svæði og skipta hundruðum. Þær eru mjög fjölbreytilegar og margar afar merkilegar, þær elstu frá því um landnám. Flestar minjanna hafa eingöngu verið kannaðar á yfirborði við fornleifaskráningu en einnig hefur verið grafið á nokkrum stöðum. Stærstu uppgreftirnir hafa verið gerðir á Hofsstöðum við Kirkjulund og í Urriðakoti skammt frá IKEA. Ýmsir athyglisverðir forngripir hafa fundist við þessar rannsóknir, til dæmis fannst bronsnæla frá 10. öld á Hofsstöðum, og snældusnúður með rúnaletri frá 13. öld í Urriðakoti (sjá neðar). Fornleifafundir staðfesta því að hið tiltölulega unga bæjarfélag stendur á gömlum merg.

Skráðar fornleifar í Garðahverfi. Sérhver minjastaður er táknaður með gulum punkti.

Minjar í Garðahverfi og víðar í Garðabæ

Minjar í Garðahverfi á Álftanesi eru einstakar, ekki síst fyrir þá heild sem þær mynda saman. Slíkt menningarlandslag er fáséð. Þar og í Gálgahrauni er að finna meira en 250 kunnar fornleifar. Skipulag byggðarinnar í Garðahverfi á rætur að rekja aftur á miðaldir hið minnsta. Þar er að finna merkilegar minjar, mismunandi vel varðveittar, um sjósókn, búskap, samgöngur, trúarlíf, skólahald, jafnvel réttarsögu. Þar var byggðin girt með hlöðnum görðum, varnargarður lá meðfram sjónum og norðaustanmegin teygði sig hinn mikli Garðatúngarður frá Balatjörn í suðaustri, um Dysjamýri og Garðaholt, til Skógtjarnar í norðvestri. Þarna eru, svo dæmi séu tekin, bæjarhólar, varir, brunnar, útihús, garðar, stekkir, fjárrétt, fjárborg, gerði, kirkjugarður, aftökustaður, steinar með áletrunum og fornar leiðir. Á Hausastöðum í Garðahverfi var Hausastaðaskóli reistur 1759, fyrsti heimavistarskólinn sérstaklega ætlaður almúgabörnum. Rústirnar eru augljósar.

Fornar leifar er víða annars staðar að finna í landi Garðabæjar. Hér má nefna gamlar leiðir, til dæmis Fógetastíginn í Gálgahrauni, selstíga og leiðir á milli bæja, alfaraleið um Heiðmörk og einnig yfir í Kópavog, en á þeirri leið voru dysjar sakamanna sem líflátnir voru á Kópavogsþingstað. Í Arnarnesi er Gvendarbrunnur. Í Heiðmörk er að finna rústir af seljum, fjárskjólum, kolagröfum, brunnum, vörðum og fjárborg svo fátt eitt sé nefnt.

Refagildra við Húsfell. Hellan ofan á hleðslunni féll fyrir opið þegar refur hreyfði við agni inni í gildrunni. Ljósmynd: Ómar Smári Ármannsson

Gjárétt (Gjáarrétt) var fjallskilarétt í vesturenda Búrfellsgjár, ekki langt frá misgengisbrúninni á mótum hennar og Selgjár. Hún var reist árið 1840 úr hraungrýti. Í Selgjá eru friðlýstar seljasamstæður sem telja má einstakar í sinni röð, byggðar upp við gjárbarmana með baðstofum, eldhúsi, kvíum og stekkjum. Þar er varla þverfótað fyrir margra alda gömlum tóftum. Á Vífilsstöðum eru sömuleiðis leifar af gömlu seli og fjöldi annarra búsetuminja.

Fornleifar á Hofsstöðum og í Urriðakoti

Einhver stærsti víkingaaldarskáli sem fundist hefur á Íslandi er á Hofsstöðum við Kirkjulund, rétt austan og ofan við miðbæjarkjarnann í Garðabæ. Þar hefur verið gerður minjagarður með margmiðlunarsýningu. Skálinn var hefðbundinn að gerð með langeldi. Við hann fundust einnig soðholur (seyðar), hringlaga gerði, smiðja og gripir á borð við forn verkfæri. Bronsnælan fannst í rústum gerðisins. Urmull dýrabeina fannst í soðholunum sem gefur til kynna ræktun svína, nautpenings og sauðfjár.

Snældusnúður frá 13. öld, sennilega gerður úr sandsteini úr Esjunni. Á honum er máð rúnaletur, stafrófsheitið fuþark. Ljósmynd: Ragnheiður Traustadóttir

Í Urriðakoti við Urriðakotsvatn í hrauninu skammt frá IKEA hefur verið seljabúskapur til forna. Þar hafa verið grafnar upp byggingar frá landnámstímanum sem hafa verið túlkaðar sem kúasel, það er sumardvalastaður eða eins konar útibú frá bæ þar sem kýr voru hafðar yfir sumartímann. Fundist hafa leifar af skála, soðhola, fjós og hús til mjólkurvinnslu og ostagerðar. Auk þess eru þar nokkrar kynslóðir af yngri seljum með þrískiptum húsum, baðstofu og búri auk eldhúss, sem ná frá 13. til 15. aldar. Margt gripa hefur fundist við fornleifarannsóknir í Urriðakoti, þar á meðal perlur, innflutt brýni og bökunarhellur, silfurhringur, tveir snældusnúðar, annar skreyttur og hinn með rúnaletri.

Hér hefur aðeins verið tæpt á því helsta í því skyni að gefa einhverja mynd af þeim fjölda fornleifa sem til eru í Garðabæ. Ýmsar fleiri merkilegar minjar er að finna innan bæjarmarka í Garðabæ þótt ekki teljist þær endilega til fornleifa í strangasta skilningi þess orðs, en í Þjóðminjalögum er miðað við að minjar þurfi að vera 100 ára eða eldri til að teljast til fornleifa. Yngri minjar eru til dæmis leifar frá seinni heimsstyrjöld í Garðahverfi og Urriðakoti, landreksstöpull Alfreds Wegener á Arnarneshæð frá 1930 og hleðslur í hrauninu niður af Flötunum sem voru reistar í tengslum við járnbrautargerð snemma á 20. öld.

Ítarefni:
  • Erla Jónsdóttir (1992). Garðabær, byggð milli hrauns og hlíða. Safn til sögu Garðabæjar. Garðabær.
  • Guðlaugur Rúnar Guðmundsson (2001). Örnefni og leiðir í landi Garðabæjar. Safn til sögu Garðabæjar III. Reykjavík.
  • Ragnheiður Traustadóttir (1994). Vettvangskönnun vegna deiliskipulags Arnarnesslands. Rannsóknarskýrslur fornleifadeildar III. Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands.
  • Ragnheiður Traustadóttir og Anna Rut Guðmundsdóttir (2004). Fornleifaskráning vegna deiliskipulags í Arnarneslandi. Byggðasafn Skagfirðinga 2004/32.
  • Ragnheiður Traustadóttir og Rúna Knútsdóttir Tetzschner (2004). Garðahverfi, fornleifaskráning 2003. Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands.
  • Ragnheiður Traustadóttir og Rúna Knútsdóttir Tetzschner (2005). Fornleifaskráning vegna deiliskipulags á Urriðaholti í Garðabæ. Byggðasafn Skagfirðinga 2005/40.
  • Ragnheiður Traustadóttir og fl. 2010. Urriðakot. Fornleifarannsókn 2010. Framvinduskýrsla. Garðabæ 2010.
  • Vefsíða gönguhópsins Ferlis

Kort:

Höfundur

fornleifafræðingur, aðjúnkt við Hólaskóla

Útgáfudagur

30.3.2012

Spyrjandi

Hildur Ýr Aðalsteinsdóttir, f. 1996

Tilvísun

Ragnheiður Traustadóttir. „Hverjar eru helstu fornleifar í Garðabæ?“ Vísindavefurinn, 30. mars 2012. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=28813.

Ragnheiður Traustadóttir. (2012, 30. mars). Hverjar eru helstu fornleifar í Garðabæ? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=28813

Ragnheiður Traustadóttir. „Hverjar eru helstu fornleifar í Garðabæ?“ Vísindavefurinn. 30. mar. 2012. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=28813>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Kort:...