Spurning

Hvað er vetni?

Spyrjandi

Steinunn Marín, f. 1991
Álfheiður Björk, f. 1991
Bryndís Þórólfsdóttir, f. 1991

Svar

Vetni er frumefni og hefur efnatáknið H. Sætistala þess í lotukerfinu er 1 og það er léttasta frumefnið. Þegar það binst súrefni myndar það vatn sem við táknum með H2O. Vetnisgas er táknað með H2 en þar eru tvær vetnisfrumeindir bundnar saman.

Eingöngu 0,01% af lofthjúpi jarðar er vetni og af massa jarðskorpunnar eru 0,9% vetni, að mestu bundið í efnasamböndum. Vetni er algengasta frumefnið í geimnum.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur16.4.2004

Efnisorð

vetni frumefni

Tilvísun

JGÞ. „Hvað er vetni?“. Vísindavefurinn 16.4.2004. http://visindavefur.is/?id=4144. (Skoðað 24.5.2013).

Höfundur

JGÞbókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Janusz Korczak
(1878-1942)
( Fyrri Næsti )

Pólskur barnalæknir, kennslufræðingur og barnabókahöfundur. Rak munaðarleysingjahæli fyrir gyðingabörn í Varsjá og sýndi þeim virðingu, en lét svo lífið ásamt þeim.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans