Hvað þýðir orðið felliköttur? Til dæmis nefnt um eldgos.Notkun orðsins felliköttur í tengslum við eldgos er tiltölulega ný og eignuð Ármanni Höskuldssyni jarðfræðingi (sbr. Mbl. 8. apríl 2024). Felliköttur er sama orð og fjalaköttur, eins konar músagildra. Elsta dæmi um fellikött á timarit.is er úr blaðinu Heimskringlu frá 1890: „þeir voru eins og mús undir felliketti.“ Góð lýsing á fjalaketti er í Sarpi, Menningarsögulegu gagnasafni Þjóðminjasafns Íslands. Þar segir:
Fjalaköttur gerður úr tveimur fjalabútum sem liggja hver ofan á öðrum en með sérstökum útbúnaði. Efri fjölinni er haldið uppi til annars endans og æti sett á milli. Þar glepst dýrið inn á milli en komi það við hnapp sem heldur fjölunum í sundur fellur sú efri niður. Við brúnir efri fjalar eru smánaglar í röð. Grindin við gaflinn er nýrri en aðrir hlutar fjalakattarins.Ef horft er á myndina sem fylgir lýsingu Ármanns má alveg sjá felliköttinn fyrir sér. Mynd af eiginlegum felliketti er síðan hægt að skoða í Sarpinum, ef smellt er á þennan hlekk - og einnig efst í þessu svari. Heimildir:
- Geir Áslaugarson. (2024, 8. apríl). Sprungan eins og felliköttur. mbl.is. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/04/08/sprungan_eins_og_fellikottur
- timarit.is. https://timarit.is
- Sarpur. Músagildra. https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=340093
- Sprungan eins og felliköttur. (Sótt 2.04.2025).
- Yfirlitsmynd: Sarpurinn.