Sólin Sólin Rís 07:13 • sest 19:25 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 19:07 • Sest 02:02 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:31 • Síðdegis: 16:47 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:37 • Síðdegis: 23:04 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er einn fjórðungur af smjöri mörg kg?

JGÞ

Upprunalega spurningin var:

Hvað eru 6 fjórðungar af smjöri samkvæmt gömlu máli mörg kg?

Fjórðungur vísar til eins fjórða hluta einhverrar stærðar. Í ritinu Mál og vog: Mælieiningar fyrri alda kemur fram að fjórðungur var bæði haft um þurrefni og vökva. Um hið fyrrnefnda var hugtakið kornmál notað en lagarmál um hið síðarnefnda, enda er lögur annað orð yfir vökva.

Mælieiningin fjórðungur tók breytingum eftir tímabilum. Til þess að svara upprunalegu spurningunni um 6 fjórðunga af smjöri, samkvæmt gömlu máli, þarf þess vegna að vita meira um samhengið.

Ef við gefum okkur að átt sé við miðaldir, þá samsvaraði einn kornfjórðungur á því tímabili um 4,29 kg. Miðað við það eru sex fjórðungar af smjöri 25,74 kg. Ef um annað tímabil í sögunni er að ræða er best að lesendur athugi nánar það sem kemur fram á bls. 16 í ritinu: Mál og vog: Mælieiningar fyrri alda.

Heimildir, frekara lesefni og mynd:

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

23.9.2026

Spyrjandi

Dagbjartur Bjarnason

Tilvísun

Jón Gunnar Þorsteinsson. „Hvað er einn fjórðungur af smjöri mörg kg?“ Vísindavefurinn, 23. september 2026, sótt 23. september 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=87488.

Jón Gunnar Þorsteinsson. (2026, 23. september). Hvað er einn fjórðungur af smjöri mörg kg? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87488

Jón Gunnar Þorsteinsson. „Hvað er einn fjórðungur af smjöri mörg kg?“ Vísindavefurinn. 23. sep. 2026. Vefsíða. 23. sep. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87488>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað er einn fjórðungur af smjöri mörg kg?
Upprunalega spurningin var:

Hvað eru 6 fjórðungar af smjöri samkvæmt gömlu máli mörg kg?

Fjórðungur vísar til eins fjórða hluta einhverrar stærðar. Í ritinu Mál og vog: Mælieiningar fyrri alda kemur fram að fjórðungur var bæði haft um þurrefni og vökva. Um hið fyrrnefnda var hugtakið kornmál notað en lagarmál um hið síðarnefnda, enda er lögur annað orð yfir vökva.

Mælieiningin fjórðungur tók breytingum eftir tímabilum. Til þess að svara upprunalegu spurningunni um 6 fjórðunga af smjöri, samkvæmt gömlu máli, þarf þess vegna að vita meira um samhengið.

Ef við gefum okkur að átt sé við miðaldir, þá samsvaraði einn kornfjórðungur á því tímabili um 4,29 kg. Miðað við það eru sex fjórðungar af smjöri 25,74 kg. Ef um annað tímabil í sögunni er að ræða er best að lesendur athugi nánar það sem kemur fram á bls. 16 í ritinu: Mál og vog: Mælieiningar fyrri alda.

Heimildir, frekara lesefni og mynd:...