Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Hver er sjálfum sér næstur?

Eyja Margrét Brynjarsdóttir

Við höfum eftir áreiðanlegum heimildum að niðurstöður nýjustu rannsókna með fullkomnustu mælitækjum gefi til kynna að svarið við þessari spurningu sé hver og einn en hvor mun vera um 2 mm frá sjálfum sér. Einnig höfum við af því spurnir að fáeinir, sumir, ýmsir og jafnvel allir hafi náð allgóðum árangri, eða innan við 14 mm. Óstaðfestar sögusagnir herma þó að sérhver sé betri en enginn í þessum efnum.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist því miður ekki í neinn til að fá niðurstöðurnar staðfestar. Ekki tókst heldur að fá viðtal við nokkurn en enn gerum við okkur vonir um að ná á endanum í einhvern. Báðir hafa átt mjög annríkt að undanförnu. Hinsvegar sagði hvorugur sér bæði ljúft og skylt að leggja blessun sína yfir þessa kynningu á niðurstöðunum.

Ritstjórn Vísindavefsins gerði nýlega tilraun þar sem mæld var hæfni til að standa, sitja, hlaupa, ganga og liggja næst sjálfum sér. Meðaltalshæfni reyndist um 60% og meðalfjarlægð 23 cm. Ekki greindist marktækur munur milli kynja. Leikmönnum er ekki ráðlagt að reyna að leika þetta eftir nema undir eftirliti sérfræðinga þar sem þeir geta átt á hættu að verða ekki með sjálfum sér lengi á eftir.

Sjá einnig svar Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni Hver er sinnar gæfu smiður?

Mynd: Sci Fi Channel

Höfundur

Eyja Margrét Brynjarsdóttir

prófessor í heimspeki og hagnýtri siðfræði

Útgáfudagur

19.1.2001

Spyrjandi

Örn Úlfar Sævarsson

Efnisorð

Tilvísun

Eyja Margrét Brynjarsdóttir. „Hver er sjálfum sér næstur?“ Vísindavefurinn, 19. janúar 2001. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=1283.

Eyja Margrét Brynjarsdóttir. (2001, 19. janúar). Hver er sjálfum sér næstur? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=1283

Eyja Margrét Brynjarsdóttir. „Hver er sjálfum sér næstur?“ Vísindavefurinn. 19. jan. 2001. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=1283>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hver er sjálfum sér næstur?
Við höfum eftir áreiðanlegum heimildum að niðurstöður nýjustu rannsókna með fullkomnustu mælitækjum gefi til kynna að svarið við þessari spurningu sé hver og einn en hvor mun vera um 2 mm frá sjálfum sér. Einnig höfum við af því spurnir að fáeinir, sumir, ýmsir og jafnvel allir hafi náð allgóðum árangri, eða innan við 14 mm. Óstaðfestar sögusagnir herma þó að sérhver sé betri en enginn í þessum efnum.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist því miður ekki í neinn til að fá niðurstöðurnar staðfestar. Ekki tókst heldur að fá viðtal við nokkurn en enn gerum við okkur vonir um að ná á endanum í einhvern. Báðir hafa átt mjög annríkt að undanförnu. Hinsvegar sagði hvorugur sér bæði ljúft og skylt að leggja blessun sína yfir þessa kynningu á niðurstöðunum.

Ritstjórn Vísindavefsins gerði nýlega tilraun þar sem mæld var hæfni til að standa, sitja, hlaupa, ganga og liggja næst sjálfum sér. Meðaltalshæfni reyndist um 60% og meðalfjarlægð 23 cm. Ekki greindist marktækur munur milli kynja. Leikmönnum er ekki ráðlagt að reyna að leika þetta eftir nema undir eftirliti sérfræðinga þar sem þeir geta átt á hættu að verða ekki með sjálfum sér lengi á eftir.

Sjá einnig svar Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni Hver er sinnar gæfu smiður?

Mynd: Sci Fi Channel...