Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Þessum spurningum er það öllum sameiginlegt að erfitt er að svara þeim örugglega. Örðugt getur reynst að meta stofnstærð sjaldgæfra tegunda ef búsvæði þeirra eru torveld yfirferðar og mörkin milli þess að telja tegund í útrýmingarhættu eða útdauða eru oft á reiki. Tegundir taldar útdauðar hafa verið uppgötvaðar á ný þannig að hver listi yfir sjaldgæfar eða útrýmdar tegundir verður aldrei tæmandi.
Í svarinu um sjaldgæfasta fuglinn eru nefndar nokkrar fuglategundir sem aðeins telja fáa einstaklinga, eftir því sem vísindamenn vita best. Tegundin Gurney´s pitta (Pitta gurneyi) er talin vera sjaldgæfasta fuglategund veraldar, stofnstærðin aðeins 18 einstaklingar árið 2000. Gerðar hafa verið umfangsmiklar rannsóknir á stofnstærðum spendýrategunda og hér að neðan fylgir listi yfir sjaldgæfustu spendýr veraldar:
Tegund
Enskt heiti
Fjöldi einstaklinga
Ártal talningar
Marmota vancouverensis
Múrmeldýr
Vancouver Island Marmot
24
2002
Lipotes vexillifer
Fljótahöfrungur
Baiji
Örfáir tugir
2000
Coleura seychellensis
Leðurblaka
Seychelle Sheath-Tailed Bat
Innan við 50
1999
Rhinoceros sondaicus
Nashyrningur
Javan Rhinoceros
Innan við 60
2002
Caprolagus hispidus
Héri
Assam Rabbit
110
2001
Bubalus mindorensis
Dvergvaxinn vatnabuffall
Tamaraw
30-200
2002
Fjölmargar spendýrategundir telja færri en 1.000 einstaklinga en hér er um allra sjaldgæfustu spendýrin að ræða.
Meðal skriðdýra hefur löngum verið talið að tegund sem kallast á ensku Round Island Boa (Casarea dussumieri), sé sú sjaldgæfasta. Nokkrar aðrar tegundir „sækja hart að þessum titli“ eins og Cropan’s Tree Boa (Xenoboa croapnii) og hin ástralska Rough-Scaled Python (Morelia carinata).
Sniglinum Samoana fragilis (e. Fragile Tree Snail) hefur fækkað stórkostlega á undanförnum 6 árum. Árið 1996 lifði hann aðeins á tveimur eyjum í Kyrrahafi, Guam og Rota en er nú horfin af Guam og aðeins tæpir 100 einstaklingar finnast á Rotaeyju. Annað lindýr, madeiralandsnigillinn (Discus guerinianus), var talið útdautt árið 1860 en í rannsókn sem gerð var á eyjunni 1996 fannst það á ný en er afar sjaldgæft.
Í svarinu við spurningunni Hversu margar tegundir af dýrum eru í útrýmingarhættu í dag og af hverju? er fjallað um fjölda tegunda í útrýmingarhættu eftir hópum og á vefsíðunni www.redlist.org má sjá uppfærðan lista og ýmsar upplýsingar um lífverur í útrýmingarhættu.
Heimild: Rauði listinn: 2002 IUCN Red List of Threatened SpeciesMynd:The Vancouver Island marmot pages
Jón Már Halldórsson. „Hvaða dýr eru í allra mestri útrýmingarhættu?“ Vísindavefurinn, 15. júlí 2003, sótt 23. ágúst 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=3582.
Jón Már Halldórsson. (2003, 15. júlí). Hvaða dýr eru í allra mestri útrýmingarhættu? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=3582
Jón Már Halldórsson. „Hvaða dýr eru í allra mestri útrýmingarhættu?“ Vísindavefurinn. 15. júl. 2003. Vefsíða. 23. ágú. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=3582>.