Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Hvernig eru álftir flokkaðar?

Jón Már Halldórsson

Álftin (Cygnus cygnus) telst vera stærsti fuglinn í íslensku fuglafánunni og er flokkuð á eftirfarandi hátt samkvæmt flokkunarkerfi Linnaeusar:

Ríki (Kingdom) Dýraríki (Animalia)
Fylking (Phylum) Seildýr (Chordata)
Undirfylking (Subphylum) Hryggdýr (Vertebrata)
Flokkur (Class) Fuglar (Aves)
Ættbálkur (Order) Andfuglar (Anseriformes)
Ætt (Family) Andaætt (Anatidae)
Ættkvísl (Genus) Svanir (Cygnus)
Tegund (Species) Álft/svanur (Cygnus cygnus)

Í ættbálki andfugla eru endur, gæsir, svanir og ýmsir aðrir hópar vatnafugla. Andaættin inniheldur endur, gæsir og svani. Alls eru 7 eða 8 tegundir svana í þessari ætt. Helst má nefna álftina (Cygnus cygnus), hnúðsvan (Cygnus olor) og svartsvaninn (Cygnus atratus) sem er uppruninn í Suðurálfu. Tegundir ættkvíslarinnar finnast nú um allan heim.

Af þessum tegundum verpir nú aðeins álftin (Cygnus cygnus) á Íslandi en til skamms tíma verptu innfluttir hnúðsvanir í Reykjavíkurtjörn og í Heiðmörk. Utan Íslands verpir álftin í Skandinavíu (aðallega í Finnlandi og Svíþjóð), á túndrusvæðum Rússlands og á strjálingi í Austur-Evrópu, aðallega í Eystrasaltslöndunum og í Hvíta-Rússlandi.

Íslenski álftastofninn er sérstök deilitegund þar sem hann er svo æxlunarlega einangraður frá öðrum álftum. Deilitegundin nefnist Cygnus cygnus islandicus.

Mynd: Sergey Panayotov - differentphotos.com

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

28.9.2004

Spyrjandi

Sigþrúður Fjeldsted, f. 1988

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvernig eru álftir flokkaðar? “ Vísindavefurinn, 28. september 2004. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4534.

Jón Már Halldórsson. (2004, 28. september). Hvernig eru álftir flokkaðar? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4534

Jón Már Halldórsson. „Hvernig eru álftir flokkaðar? “ Vísindavefurinn. 28. sep. 2004. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4534>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvernig eru álftir flokkaðar?
Álftin (Cygnus cygnus) telst vera stærsti fuglinn í íslensku fuglafánunni og er flokkuð á eftirfarandi hátt samkvæmt flokkunarkerfi Linnaeusar:

Ríki (Kingdom) Dýraríki (Animalia)
Fylking (Phylum) Seildýr (Chordata)
Undirfylking (Subphylum) Hryggdýr (Vertebrata)
Flokkur (Class) Fuglar (Aves)
Ættbálkur (Order) Andfuglar (Anseriformes)
Ætt (Family) Andaætt (Anatidae)
Ættkvísl (Genus) Svanir (Cygnus)
Tegund (Species) Álft/svanur (Cygnus cygnus)

Í ættbálki andfugla eru endur, gæsir, svanir og ýmsir aðrir hópar vatnafugla. Andaættin inniheldur endur, gæsir og svani. Alls eru 7 eða 8 tegundir svana í þessari ætt. Helst má nefna álftina (Cygnus cygnus), hnúðsvan (Cygnus olor) og svartsvaninn (Cygnus atratus) sem er uppruninn í Suðurálfu. Tegundir ættkvíslarinnar finnast nú um allan heim.

Af þessum tegundum verpir nú aðeins álftin (Cygnus cygnus) á Íslandi en til skamms tíma verptu innfluttir hnúðsvanir í Reykjavíkurtjörn og í Heiðmörk. Utan Íslands verpir álftin í Skandinavíu (aðallega í Finnlandi og Svíþjóð), á túndrusvæðum Rússlands og á strjálingi í Austur-Evrópu, aðallega í Eystrasaltslöndunum og í Hvíta-Rússlandi.

Íslenski álftastofninn er sérstök deilitegund þar sem hann er svo æxlunarlega einangraður frá öðrum álftum. Deilitegundin nefnist Cygnus cygnus islandicus.

Mynd: Sergey Panayotov - differentphotos.com...