Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað þýðir 'meinvill' í sálminum Heims um ból?

Guðrún Kvaran

Mörgum hefur orðmyndin meinvill í sálminum "Heims um ból" orðið að umhugsunarefni. Þar stendur:
...
Frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind
meinvill í myrkrunum lá.

Lýsingarorðið meinvillur merkir 'fullkomlega ráðlaus, alveg villtur'. Mein- stendur þarna sem herðandi forliður með villur 'villtur', samanber að fara villur vega 'villast'. Í sálminum er því verið að segja að mannkindin, það er mannkynið, hafi legið fullkomlega ráðlaus í myrkrum.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

14.3.2006

Spyrjandi

Birgir Sigurðsson, Jörundur Kristjánsson, Inga Gylfadóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir 'meinvill' í sálminum Heims um ból?“ Vísindavefurinn, 14. mars 2006. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=5706.

Guðrún Kvaran. (2006, 14. mars). Hvað þýðir 'meinvill' í sálminum Heims um ból? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=5706

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir 'meinvill' í sálminum Heims um ból?“ Vísindavefurinn. 14. mar. 2006. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=5706>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað þýðir 'meinvill' í sálminum Heims um ból?
Mörgum hefur orðmyndin meinvill í sálminum "Heims um ból" orðið að umhugsunarefni. Þar stendur:

...
Frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind
meinvill í myrkrunum lá.

Lýsingarorðið meinvillur merkir 'fullkomlega ráðlaus, alveg villtur'. Mein- stendur þarna sem herðandi forliður með villur 'villtur', samanber að fara villur vega 'villast'. Í sálminum er því verið að segja að mannkindin, það er mannkynið, hafi legið fullkomlega ráðlaus í myrkrum. ...