Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Hvað er eitt terabæti mörg megabæti?

HMH

Forskeytið tera- stendur yfirleitt fyrir billjón, það er milljón milljónir. Forskeytið mega stendur fyrir milljón. Því gæti virst sem eitt terabæt séu nákvæmlega milljón megabæti. En svo er ekki.

Minnsta eining upplýsinga í tölvu er biti. Biti hefur ýmist gildið 0 eða 1. Átta bitar í röð nefnast bæti. 01001110 er dæmi um bæti. Möguleg gildi bætis eru 256 (28). Af þessum ástæðum er eðlilegt að nota veldi af tveimur til að lýsa rými í tölvum.

Hins vegar vill svo heppilega til að talan 210 = 1024 er nálægt þúsundi. Því eru 1024 bæti nefnd kílóbæti. 1024 kílóbæti eru nefnd megabæti, 1024 megabæti gígabæti og 1024 gígabæti terabæti. Það eru þá 1024*1024=1.048.576 bæti í megabæti og að sama skapi 1.048.576 megabæti í terabæti.



Þessi harði diskur er 1.048.576 MB

Frekara lesefni af Vísindavefnum:

Mynd: 1TB - Sótt 22.07.10

Höfundur

heimspekingur og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

30.9.2000

Spyrjandi

Einar Finnsson

Tilvísun

HMH. „Hvað er eitt terabæti mörg megabæti?“ Vísindavefurinn, 30. september 2000. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=954.

HMH. (2000, 30. september). Hvað er eitt terabæti mörg megabæti? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=954

HMH. „Hvað er eitt terabæti mörg megabæti?“ Vísindavefurinn. 30. sep. 2000. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=954>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað er eitt terabæti mörg megabæti?
Forskeytið tera- stendur yfirleitt fyrir billjón, það er milljón milljónir. Forskeytið mega stendur fyrir milljón. Því gæti virst sem eitt terabæt séu nákvæmlega milljón megabæti. En svo er ekki.

Minnsta eining upplýsinga í tölvu er biti. Biti hefur ýmist gildið 0 eða 1. Átta bitar í röð nefnast bæti. 01001110 er dæmi um bæti. Möguleg gildi bætis eru 256 (28). Af þessum ástæðum er eðlilegt að nota veldi af tveimur til að lýsa rými í tölvum.

Hins vegar vill svo heppilega til að talan 210 = 1024 er nálægt þúsundi. Því eru 1024 bæti nefnd kílóbæti. 1024 kílóbæti eru nefnd megabæti, 1024 megabæti gígabæti og 1024 gígabæti terabæti. Það eru þá 1024*1024=1.048.576 bæti í megabæti og að sama skapi 1.048.576 megabæti í terabæti.



Þessi harði diskur er 1.048.576 MB

Frekara lesefni af Vísindavefnum:

Mynd: 1TB - Sótt 22.07.10...