Sólin Sólin Rís 08:37 • sest 17:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:39 • Síðdegis: 21:07 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:23 • Síðdegis: 14:57 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Í hvaða orðflokki (eða orðflokkum) eru orðin plús, mínus og sinnum?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Orðin plús og mínus eru nafnorð að uppruna en eru einnig notuð sem atviksorð í stærðfræði í merkingunni „að viðbættu; að frádregnu“.

Plús er að uppruna karlkynsorð og tökuorð líklega úr dönsku plus. Það á rætur að rekja til latínu plûs „meiri, meira“.

Mínus er sömuleiðis karlkynsorð fengið að láni úr dönsku en á rætur að rekja til latínu minus „minna“.

Sinnum er að uppruna þágufall fleirtölu af hvorugkynsorðinu sinn „skipti“ en er eins og hin tvö einnig notað sem atviksorð.

Mynd: HB

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

27.9.2001

Spyrjandi

Atli Harðarson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Í hvaða orðflokki (eða orðflokkum) eru orðin plús, mínus og sinnum?“ Vísindavefurinn, 27. september 2001, sótt 21. október 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1883.

Guðrún Kvaran. (2001, 27. september). Í hvaða orðflokki (eða orðflokkum) eru orðin plús, mínus og sinnum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1883

Guðrún Kvaran. „Í hvaða orðflokki (eða orðflokkum) eru orðin plús, mínus og sinnum?“ Vísindavefurinn. 27. sep. 2001. Vefsíða. 21. okt. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1883>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...