Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvaðan er orðið lúffa komið, fyrir sérstaka vettlinga?

Guðrún Kvaran

Orðið lúffa er tökuorð úr dönsku luffe ‘þykkur belgvettlingur með þumli, oft úr skinni’. Orðið er einnig til í norsku í sömu merkingu. Luffe er talið tökuorð úr lágþýsku *love eða *lūve ‘lófi’ og er því skylt íslenska orðinu lófi.

Það virðist fyrst hafa verið notað í jósku en síðan var það tekið upp í dönsku almennt. Það er einnig skylt fornháþýsku laffa, í yngri þýsku Laffa ‘árarblað’.

Orðið lúffa er vel þekkt í talmáli en engin dæmi fundust um það í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans. Ekki reyndist því unnt að rekja aldur þess með vissu.

Lúffa er þykkur belgvettlingur með þumli, oft úr skinni.

Mynd:
  • EDS.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

20.5.2009

Spyrjandi

Erlendur Gíslason

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan er orðið lúffa komið, fyrir sérstaka vettlinga?“ Vísindavefurinn, 20. maí 2009. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=20497.

Guðrún Kvaran. (2009, 20. maí). Hvaðan er orðið lúffa komið, fyrir sérstaka vettlinga? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=20497

Guðrún Kvaran. „Hvaðan er orðið lúffa komið, fyrir sérstaka vettlinga?“ Vísindavefurinn. 20. maí. 2009. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=20497>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...