Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Af hverju er salt í sjónum en ekki í vatninu sem við drekkum?

ÞV

Þessu er að miklu leyti svarað í texta Sigurðar Steinþórssonar um spurninguna Hvers vegna er sjórinn saltur? og í öðrum svörum sem lesendur geta kallað fram með því að setja efnisorðið salt inn í leitarvél okkar.

Vatnið sem við drekkum er yfirleitt komið úr einhvers konar brunnum. Það er í aðalatriðum regnvatn sem er ekki salt þegar það fellur á jörðina og hefur raunar hreinsast að öðru leyti af því að fara um jarðlögin. Víða erlendis þurfa menn einnig að leiða vatnið gegnum sérstaka hreinsun vegna mengunar af manna völdum. Hér kann til dæmis að vera fróðlegt að líta á svar Ingu Þórsdóttur við spurningunni Er vatn á Íslandi betra en annars staðar í heiminum, og þá af hverju?

Eins og fram kemur í svari Sigurðar hefur saltið í sjónum borist þangað með ánum sem hafa rofið það úr jarðlögunum. Það hefur safnast þar fyrir á löngum tíma af því að það gufar ekki upp með vatninu. Saltið situr líka eftir þegar vatn frýs.

Frekara lesefni af Vísindavefnum

Höfundur

Þorsteinn Vilhjálmsson

prófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011

Útgáfudagur

16.4.2002

Spyrjandi

Steinunn Pála
Guðmundsdóttir, f. 1987

Tilvísun

ÞV. „Af hverju er salt í sjónum en ekki í vatninu sem við drekkum?“ Vísindavefurinn, 16. apríl 2002. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=2308.

ÞV. (2002, 16. apríl). Af hverju er salt í sjónum en ekki í vatninu sem við drekkum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=2308

ÞV. „Af hverju er salt í sjónum en ekki í vatninu sem við drekkum?“ Vísindavefurinn. 16. apr. 2002. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=2308>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Af hverju er salt í sjónum en ekki í vatninu sem við drekkum?
Þessu er að miklu leyti svarað í texta Sigurðar Steinþórssonar um spurninguna Hvers vegna er sjórinn saltur? og í öðrum svörum sem lesendur geta kallað fram með því að setja efnisorðið salt inn í leitarvél okkar.

Vatnið sem við drekkum er yfirleitt komið úr einhvers konar brunnum. Það er í aðalatriðum regnvatn sem er ekki salt þegar það fellur á jörðina og hefur raunar hreinsast að öðru leyti af því að fara um jarðlögin. Víða erlendis þurfa menn einnig að leiða vatnið gegnum sérstaka hreinsun vegna mengunar af manna völdum. Hér kann til dæmis að vera fróðlegt að líta á svar Ingu Þórsdóttur við spurningunni Er vatn á Íslandi betra en annars staðar í heiminum, og þá af hverju?

Eins og fram kemur í svari Sigurðar hefur saltið í sjónum borist þangað með ánum sem hafa rofið það úr jarðlögunum. Það hefur safnast þar fyrir á löngum tíma af því að það gufar ekki upp með vatninu. Saltið situr líka eftir þegar vatn frýs.

Frekara lesefni af Vísindavefnum...