Sólin Sólin Rís 09:20 • sest 17:01 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 02:23 • Sest 16:10 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:32 • Síðdegis: 14:54 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 08:41 • Síðdegis: 21:20 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er atbeini?

Guðrún Kvaran

Orðið atbeini merkir ‘hjálp, aðstoð, fulltingi’. Atbeini þekktist þegar í fornu máli í merkingunni ‘hjálp, aðstoð’ en einnig í orðasambandinu að vera í atbeina með einhverjum ‘hjálpa einhverjum’ (ONP 1:680). Beini án forskeytis kemur einnig fyrir í fornu máli í merkingunni ‘hjálp; gagn’. Það kemur einnig fyrir í ýmsum samsetningum eins beinisamur ‘hjálpsamur’ og beinisemi ‘hjálpsemi’.

At- er gamalt forskeyti sem í yngra máli breyttist oftast í að- en þó ekki alltaf. Í Íslenskri orðsifjabók nefnir Ásgeir Blöndal Magnússon nokkur dæmi um að gamla forskeytið hafi haldist og vísar í flettuna að- (2) og dæmin athvarf, athöfn o.s.frv. (1989:2). Hann reyndar nefnir ekki orðið atbeini þar en vísar úr því orði í flettuna að- (2) og verður að líta svo á að atbeini eigi þar heima.

Heimildir og mynd:
  • Ásgeir Blöndal Magnússon. 1989. Íslensk orðsifjabók. Orðabók Háskólans, Reykjavík. https://ordsifjabok.arnastofnun.is
  • ONP=Ordbog over det norrøne prosasprog. 1995. 1:a-bam. Den arnamagnæanske kommission, København.
  • Yfirlitsmynd: Picryl.com. (Sótt 29.10.2026).

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

4.11.2026

Spyrjandi

Hlín Jóhannesdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er atbeini?“ Vísindavefurinn, 4. nóvember 2026, sótt 4. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=29884.

Guðrún Kvaran. (2026, 4. nóvember). Hvað er atbeini? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=29884

Guðrún Kvaran. „Hvað er atbeini?“ Vísindavefurinn. 4. nóv. 2026. Vefsíða. 4. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=29884>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...