Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Hver er fjölmennasti bærinn á Austurlandi?

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

Spurningin er heild sinni er svona:
Hver er fjölmennasti bærinn á Austurlandi? Þá er ég ekki að tala um sveitarfélag heldur stað.

Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Hagstofu Íslands áttu 11.755 manns lögheimili á Austurlandi þann 1. desember 2002. Af þeim voru 9.882 (84%) skráðir til heimilis í einhverjum af hinum 17 byggðakjörnum Austurlands, en íbúar í dreifbýli töldust 1.873.

Eins og sjá má í töflu 1 hér að neðan, sem upprunnin er á heimasíðu Hagstofunnar, eru þrír byggðakjarnar á Austurlandi með yfir 1.000 íbúa. Stærsti byggðakjarninn er Höfn með 1.763 íbúa þann 1. desember 2002. Það þýðir að rétt um 15% Austfirðinga búi á Höfn. Nærst stærsti byggðakjarninn er Egilsstaðir með 1.643 íbúa og svo Neskaupstaður með 1.395 íbúa. Fámennustu austfirsku byggðakjarnarnir sem tilgreindir eru hjá Hagstofunni eru Eiðar með 29 íbúa og Hallormsstaður með 60 íbúa.

ByggðakjarniÍbúar
Höfn, Sveitarfélaginu Hornafirði1.763
Egilsstaðir, Austur-Héraði1.643
Neskaupstaður, Fjarðabyggð1.395
Eskifjörður, Fjarðabyggð966
Seyðisfjörður749
Reyðarfjörður, Fjarðabyggð625
Vopnafjörður, Vopnafjarðarhreppi592
Fáskrúðsfjörður, Búðarhreppi569
Djúpivogur, Djúpavogshreppi383
Fellabær, Fellahreppi362
Stöðvarfjörður, Stöðvarhreppi276
Breiðdalsvík, Breiðdalshreppi182
Bakkafjörður, Skeggjastaðahreppi114
Borgarfjörður eystra, Borgarfjarðarhreppi96
Nesjakauptún, Sveitarfélaginu Hornafirði78
Hallormsstaður, Austur-Héraði60
Eiðar, Austur-Héraði29
Strjálbýli á Austurlandi1.873
Samtals11.755

Tafla 1. Íbúar á Austurlandi 1. desember 2002 – skipt eftir byggðakjörnum.

Hér hefur verið greint frá íbúafjölda í einstökum byggðakjörnum en varast ber að rugla saman byggðakjörnum og sveitarfélögum. Í einu sveitarfélagi geta verið fleiri en einn byggðakjarni auk íbúa í dreifbýli. Ef skoðað er hvernig Austfirðingar skiptast á milli sveitarfélaga (tafla 2) þá kemur í ljós að Fjarðabyggð var fjölmennasta sveitarfélagið í lok árs 2002 með 3.057 íbúa, Sveitarfélagið Hornafjörður var næst fjölmennast með 2.332 íbúa og Austur-Hérað var í þriðja sæti með 2.061 íbúa. Þrjú sveitarfélög voru með innan við 100 íbúa en það eru Mjóafjarðarhreppur með 36 íbúa, Fáskrúðsfjarðarhreppur með 57 íbúa og Fljótsdalshreppur með 84 íbúa.

SveitarfélagÍbúar
Fjarðabyggð3.057
Sveitarfélagið Hornafjörður2.332
Austur-Hérað2.061
Vopnafjarðarhreppur762
Seyðisfjörður749
Búðahreppur569
Djúpavogshreppur498
Fellahreppur443
Norður-Hérað286
Stöðvarhreppur276
Breiðdalshreppur267
Borgarfjarðarhreppur140
Skeggjastaðahreppur138
Fljótsdalshreppur84
Fáskrúðsfjarðarhreppur57
Mjóafjarðarhreppur36
Samtals11.755
Tafla 2. Íbúar á Austurlandi 1. desember 2002 – skipt eftir sveitarfélögðum.

Að lokum má geta þess að samhliða Alþingiskosningunum í maí 2003 kusu íbúar Stöðvarhrepps og Búðahrepps um sameiningu sveitarfélaganna og var hún samþykkt í báðum hreppum. Þegar sameiningin tekur gildi verður hið nýja sveitarfélag það fjórða fjölmennasta á Austurlandi með tæplega 850 íbúa ef miðað er við fólksfjöldatölur frá 1. desember 2002.

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

7.7.2003

Spyrjandi

Soffía Björgúlfsdóttir, f. 1990

Tilvísun

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hver er fjölmennasti bærinn á Austurlandi?“ Vísindavefurinn, 7. júlí 2003. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=3560.

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. (2003, 7. júlí). Hver er fjölmennasti bærinn á Austurlandi? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=3560

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hver er fjölmennasti bærinn á Austurlandi?“ Vísindavefurinn. 7. júl. 2003. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=3560>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...