Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Er það satt að bandaríski seðlabankinn sé einkarekinn?

Gylfi Magnússon

Nei, bandaríski seðlabankinn (Federal Reserve Bank) er ríkisstofnun, líkt og almennt tíðkast með seðlabanka. Æðstu stjórnendur bankans eru tilnefndir af forsetanum og tilnefningin staðfest af öldungadeildinni.

Höfuðstöðvar bandaríska seðlabankans.

Það er hins vegar rétt að hluta af starfsemi seðlabankans er skipt á tólf banka sem hver um sig þjónar tilteknum hluta Bandaríkjanna og þessir bankar eru hlutafélög sem hafa ýmis einkenni einkafyrirtækja. Hlutaféð er í eigu fjármálafyrirtækja sem hver hinna svæðisbundnu seðlabanka þjónar.

Þrátt fyrir að svæðisbundnu seðlabankarnir séu þannig hlutafélög og að nafninu til í einkaeigu þá eru þeir ekki reknir sem einkafyrirtæki. Þeir stefna ekki að hagnaði, ekki er hægt að eiga viðskipti með hlutaféð og ekki greiddur arður af því fyrir utan 6% vexti á ári. Annar hagnaður af rekstri seðlabankans bandaríska rennur til ríkisins.

Mynd:

Höfundur

Gylfi Magnússon

prófessor í hagfræði við HÍ

Útgáfudagur

2.2.2004

Spyrjandi

Freyr Björnsson

Tilvísun

Gylfi Magnússon. „Er það satt að bandaríski seðlabankinn sé einkarekinn?“ Vísindavefurinn, 2. febrúar 2004, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=3982.

Gylfi Magnússon. (2004, 2. febrúar). Er það satt að bandaríski seðlabankinn sé einkarekinn? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=3982

Gylfi Magnússon. „Er það satt að bandaríski seðlabankinn sé einkarekinn?“ Vísindavefurinn. 2. feb. 2004. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=3982>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...