Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað þýðir orðið kaldaljós?

Guðrún Kvaran

Orðið kaldaljós þekkist í fornu máli aðeins sem viðurnefni Kolbeins Arnórssonar kaldaljóss. Viðurnefnið kaldaljós kemur fyrir í Íslendinga sögu og Þórðar sögu kakala en í báðum er hann einnig nefndur Staðar-Kolbeinn. Hans er einnig getið í biskupa sögum.

Hvergi kemur fram hvernig Kolbeinn fékk viðurnefni sitt. Hugsanlega hefur það verið gefið til háðungar, þar sem ljós er vanalega heitt, og getur þá hafa átt að vísa til ljóss frá maurildum, villuljóss í mýrum eða einhvers slíks en allt er þetta óvíst.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

13.4.2004

Spyrjandi

Hálfdan Helgason

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðið kaldaljós?“ Vísindavefurinn, 13. apríl 2004. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4132.

Guðrún Kvaran. (2004, 13. apríl). Hvað þýðir orðið kaldaljós? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4132

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðið kaldaljós?“ Vísindavefurinn. 13. apr. 2004. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4132>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...