Sólin Sólin Rís 05:43 • sest 21:13 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:37 • Sest 06:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:59 • Síðdegis: 15:47 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:39 • Síðdegis: 21:50 í Reykjavík

Er Dettifoss vatnsmesti foss Evrópu?

EÖÞ

Vatnsmesti foss Evrópu telst vera Rheinfalle í Sviss og hvorki Dettifoss né aðrir fossar á Íslandi komast nærri honum í vatnsmagni. Dettifoss er aflmesti foss Íslands en sá vatnsmesti er Urriðafoss.

Vatnsmesta á landsins er hins vegar Ölfusá. Á heimasíðu Orkustofnunar er hægt að skoða niðurstöður vatnamælinga á rennsli vatnsfalla víðs vegar um landið. Þar kemur fram að meðalrennsli Ölfusár við Selfoss er 400 rúmmetrar á sekúndu (m3/s) á 44 ára tímabili.

Næst vatnsmesta á landsins er Þjórsá en samkvæmt sömu heimild er meðalrennsli hennar við Urriðafoss 363 m3/s.

Hægt er að lesa meira um þetta í svari við spurningunni Hver er vatnsmesta á Íslands?

Heimildir:

Höfundur

Einar Örn Þorvaldsson

háskólanemi og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

30.4.2004

Spyrjandi

Ólafur Árnason

Tilvísun

EÖÞ. „Er Dettifoss vatnsmesti foss Evrópu?“ Vísindavefurinn, 30. apríl 2004. Sótt 18. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4198.

EÖÞ. (2004, 30. apríl). Er Dettifoss vatnsmesti foss Evrópu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4198

EÖÞ. „Er Dettifoss vatnsmesti foss Evrópu?“ Vísindavefurinn. 30. apr. 2004. Vefsíða. 18. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4198>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Heimildir:...