Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Af hverju brakar í manni?

EDS

Í svari við spurningunni Hvað gerist þegar maður lætur braka í puttunum? er því lýst sem gerist þegar brakar eða smellur í liðamótum eins og eru í fingrunum á okkur. Þar segir:
Þegar við látum braka í liðum þá er í raun verið að færa liðinn úr eðlilegri stöðu og teygja á liðpokanum. Við það eykst rúmmál liðpokans og þrýstingur í honum minnkar. Í liðvökvanum er uppleyst gas, meðal annars koltvísýringur. Þegar þrýstingurinn minnkar losnar gasið úr vökvanum og myndar loftbólur (sem eru að mestu úr koltvísýringi) sem fylla upp í holrúmið sem skapaðist við aukið rúmmál liðpokans. Þegar liðurinn gengur í samt lag aftur vex þrýstingurinn og loftbólurnar falla saman. Talið er að hljóðið sem heyrist þegar við látum smella í liðum myndist þegar gasið losnar úr vökvanum og/eða þegar holrúmin falla saman.

Það geta einnig verið aðrar orsakir fyrir því að það brakar í okkur, til dæmis í hné eða ökkla þegar staðið er upp eða gengið upp stiga eða í hálsi. Þá getur verið um að ræða að sinar og liðbönd við liðamót séu að færast til og við það heyrist smellur.

Lesendum er bent á að kynna sér ofangreint svar í heild sinni til þess að fá nánari útskýringar.


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

26.4.2005

Spyrjandi

Dagbjört Eiríksdóttir, f. 1992

Efnisorð

Tilvísun

EDS. „Af hverju brakar í manni?“ Vísindavefurinn, 26. apríl 2005. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4955.

EDS. (2005, 26. apríl). Af hverju brakar í manni? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4955

EDS. „Af hverju brakar í manni?“ Vísindavefurinn. 26. apr. 2005. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4955>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Af hverju brakar í manni?
Í svari við spurningunni Hvað gerist þegar maður lætur braka í puttunum? er því lýst sem gerist þegar brakar eða smellur í liðamótum eins og eru í fingrunum á okkur. Þar segir:

Þegar við látum braka í liðum þá er í raun verið að færa liðinn úr eðlilegri stöðu og teygja á liðpokanum. Við það eykst rúmmál liðpokans og þrýstingur í honum minnkar. Í liðvökvanum er uppleyst gas, meðal annars koltvísýringur. Þegar þrýstingurinn minnkar losnar gasið úr vökvanum og myndar loftbólur (sem eru að mestu úr koltvísýringi) sem fylla upp í holrúmið sem skapaðist við aukið rúmmál liðpokans. Þegar liðurinn gengur í samt lag aftur vex þrýstingurinn og loftbólurnar falla saman. Talið er að hljóðið sem heyrist þegar við látum smella í liðum myndist þegar gasið losnar úr vökvanum og/eða þegar holrúmin falla saman.

Það geta einnig verið aðrar orsakir fyrir því að það brakar í okkur, til dæmis í hné eða ökkla þegar staðið er upp eða gengið upp stiga eða í hálsi. Þá getur verið um að ræða að sinar og liðbönd við liðamót séu að færast til og við það heyrist smellur.

Lesendum er bent á að kynna sér ofangreint svar í heild sinni til þess að fá nánari útskýringar.


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....