Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hversu gamalt er máltækið „sá á kvölina sem á völina?“ og hvað þýðir það?

Guðrún Kvaran

Elsta dæmi Orðabókar Háskólans um máltækið er úr riti eftir Jón Rúgmann frá miðri 17. öld: kuöl á sá sem völ á. Litlu yngra er dæmi úr málsháttasafni Guðmundar Ólafssonar frá síðari hluta 17. aldar: Sá á Kvölena, sem á Völena.

Merking málsháttarins liggur í því að erfitt getur verið að velja milli fólks, hluta eða verknaða og að sá geti „kvalist“ innra með sér sem þarf að taka slíka ákvörðun. Það er honum sem sagt kvöl að þurfa að velja.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

15.4.2009

Spyrjandi

Sigrún Lilja Jóhannesdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hversu gamalt er máltækið „sá á kvölina sem á völina?“ og hvað þýðir það? “ Vísindavefurinn, 15. apríl 2009. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=51322.

Guðrún Kvaran. (2009, 15. apríl). Hversu gamalt er máltækið „sá á kvölina sem á völina?“ og hvað þýðir það? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=51322

Guðrún Kvaran. „Hversu gamalt er máltækið „sá á kvölina sem á völina?“ og hvað þýðir það? “ Vísindavefurinn. 15. apr. 2009. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=51322>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...