Sólin Sólin Rís 05:22 • sest 21:31 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:11 • Sest 05:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:38 • Síðdegis: 18:56 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:39 • Síðdegis: 12:46 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað er hliðstætt orð?

Guðrún Kvaran

Þegar talað er um að orð sé hliðstætt er yfirleitt átt við fornöfn eða töluorð sem standa sem ákvæðisorð með því orði sem er aðalorð til dæmis í nafnlið. Andstæðan er sérstætt orð. Ef fornafn eða töluorð er sérstætt er það aðalorðið í nafnlið.

Dæmi:
  • Eitthvert ólag er á tölvunni (hliðstætt)
  • Hann fór í eitthvert ferðalag (hliðstætt)
  • Sérhvert barn fékk fána á hátíðinni (hliðstætt)
  • Sigríður á þrjár dætur (hliðstætt)
  • Er eitthvað að? (sérstætt)
  • Fór hann eitthvað? (sérstætt)
  • Hvað á ég að kaupa margar kökur? Kauptu þrjár eða fjórar (sérstætt)

Ólag, ferðalag, barn og dætur eru hér aðalorð í nafnlið og fornöfnin því hliðstæð. Í hinum dæmunum eru fornöfnin eða töluorðin aðalorðin.

Hann fór í eitthvert ferðalag. Hér er ferðalag aðalorð í nafnlið og fornafnið því hliðstætt.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

7.1.2013

Spyrjandi

Harpa

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er hliðstætt orð?“ Vísindavefurinn, 7. janúar 2013. Sótt 24. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=52836.

Guðrún Kvaran. (2013, 7. janúar). Hvað er hliðstætt orð? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=52836

Guðrún Kvaran. „Hvað er hliðstætt orð?“ Vísindavefurinn. 7. jan. 2013. Vefsíða. 24. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=52836>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...