Sólin Sólin Rís 07:46 • sest 18:45 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 10:16 • Sest 18:20 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:01 • Síðdegis: 13:16 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvernig finn ég stofn sagnorða?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Stofn sagna er einfaldast að finna í stýfðum boðhætti, það er boðhætti án persónuendinga. Hann er eins og nafnháttur að frádregnu -a eða -ja. Sem dæmi má nefna far af fara, tak af taka, tel af telja, vel af velja.

Í veikum sögnum, sem beygjast eftir fjórða flokki, eins og baka–bakaði, kalla–kallaði, skrifa–skrifaði, er -a hluti stofnsins. Stofninn er baka, kalla, skrifa og -a helst í boðhætti, til dæmis baka þú, kalla þú.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

19.12.2005

Spyrjandi

Lárus

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvernig finn ég stofn sagnorða?“ Vísindavefurinn, 19. desember 2005, sótt 4. október 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=5494.

Guðrún Kvaran. (2005, 19. desember). Hvernig finn ég stofn sagnorða? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=5494

Guðrún Kvaran. „Hvernig finn ég stofn sagnorða?“ Vísindavefurinn. 19. des. 2005. Vefsíða. 4. okt. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=5494>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvernig finn ég stofn sagnorða?
Stofn sagna er einfaldast að finna í stýfðum boðhætti, það er boðhætti án persónuendinga. Hann er eins og nafnháttur að frádregnu -a eða -ja. Sem dæmi má nefna far af fara, tak af taka, tel af telja, vel af velja.

Í veikum sögnum, sem beygjast eftir fjórða flokki, eins og baka–bakaði, kalla–kallaði, skrifa–skrifaði, er -a hluti stofnsins. Stofninn er baka, kalla, skrifa og -a helst í boðhætti, til dæmis baka þú, kalla þú. ...