Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er kínín nákvæmlega?

JGÞ

Kínín er það sem nefnist lýtingur (e. alkaloid) á íslensku. Önnur orð yfir sama hugtak eru alkalóíði, beiskjuefni og plöntubasi. Í svari við spurningunni Hvað er alkaloid og hvernig er það íslenskað? segir þetta um lýting:
Lýtingur er flokkur basískra, lífrænna köfnunarefnissambanda sem myndast í plöntum. Lýtingar þjóna oft vistfræðilegu hlutverki í plöntunum, veita þeim meðal annars vörn gegn sýkingum eða ágangi skordýra. Margir lýtingar hafa einnig reynst hafa margvísleg áhrif á mannslíkamann. Þessi efni koma oftast fyrir sem sölt lífrænna sýrna og eru flest óleysanleg í vatni.
Kínín, morfín og ópíum eru allt dæmi um lýtinga sem hafa verið notaðir sem lyf.

Laufblöð og blóm kínatrés.

Kínín myndast í berki kínatrjáa sem vaxa í hitabelti Suður-Ameríku. Kínín hefur einnig verið framleitt á rannsóknarstofum. Kínín er velþekkt lyf við mýrarköldu eða malaríu en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir ekki lengur með því sem fyrsta kosti gegn sjúkdómnum.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Útgáfudagur

17.5.2010

Spyrjandi

Jóhann D. Magnússon, f. 1991

Tilvísun

JGÞ. „Hvað er kínín nákvæmlega?“ Vísindavefurinn, 17. maí 2010, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=55990.

JGÞ. (2010, 17. maí). Hvað er kínín nákvæmlega? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=55990

JGÞ. „Hvað er kínín nákvæmlega?“ Vísindavefurinn. 17. maí. 2010. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=55990>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað er kínín nákvæmlega?
Kínín er það sem nefnist lýtingur (e. alkaloid) á íslensku. Önnur orð yfir sama hugtak eru alkalóíði, beiskjuefni og plöntubasi. Í svari við spurningunni Hvað er alkaloid og hvernig er það íslenskað? segir þetta um lýting:

Lýtingur er flokkur basískra, lífrænna köfnunarefnissambanda sem myndast í plöntum. Lýtingar þjóna oft vistfræðilegu hlutverki í plöntunum, veita þeim meðal annars vörn gegn sýkingum eða ágangi skordýra. Margir lýtingar hafa einnig reynst hafa margvísleg áhrif á mannslíkamann. Þessi efni koma oftast fyrir sem sölt lífrænna sýrna og eru flest óleysanleg í vatni.
Kínín, morfín og ópíum eru allt dæmi um lýtinga sem hafa verið notaðir sem lyf.

Laufblöð og blóm kínatrés.

Kínín myndast í berki kínatrjáa sem vaxa í hitabelti Suður-Ameríku. Kínín hefur einnig verið framleitt á rannsóknarstofum. Kínín er velþekkt lyf við mýrarköldu eða malaríu en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir ekki lengur með því sem fyrsta kosti gegn sjúkdómnum.

Heimildir og mynd:...