Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaðan kemur orðið spítali?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Orðið spítali 'sjúkrahús' er tökuorð í íslensku þegar í fornu máli, líklegast úr miðlágþýsku sem töluð var í norðurhluta Þýskalands. Þar voru notuð orðin spetal, spittal í sömu merkingu. Í miðlágþýsku var orðið fengið að láni úr miðaldalatínu hospitâle 'hús, gistihús' sem er leitt af hvorugkyni lýsingarorðsins hospitâlis 'það sem er viðkomandi gestum'. Í latínu merkir fleirtölumyndin hospitâlia 'rými fyrir gesti' en karlkynsorðið hospes merkir 'gestur, gestgjafi'.

Landspítali - háskólasjúkrahús í vetrarríki.

Mynd: Landspítali - háskólasjúkrahús í vetrarríki, febrúar 2002.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

27.3.2006

Spyrjandi

Elín Traustadóttir, f. 1989

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið spítali?“ Vísindavefurinn, 27. mars 2006, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=5734.

Guðrún Kvaran. (2006, 27. mars). Hvaðan kemur orðið spítali? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=5734

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið spítali?“ Vísindavefurinn. 27. mar. 2006. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=5734>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvaðan kemur orðið spítali?
Orðið spítali 'sjúkrahús' er tökuorð í íslensku þegar í fornu máli, líklegast úr miðlágþýsku sem töluð var í norðurhluta Þýskalands. Þar voru notuð orðin spetal, spittal í sömu merkingu. Í miðlágþýsku var orðið fengið að láni úr miðaldalatínu hospitâle 'hús, gistihús' sem er leitt af hvorugkyni lýsingarorðsins hospitâlis 'það sem er viðkomandi gestum'. Í latínu merkir fleirtölumyndin hospitâlia 'rými fyrir gesti' en karlkynsorðið hospes merkir 'gestur, gestgjafi'.

Landspítali - háskólasjúkrahús í vetrarríki.

Mynd: Landspítali - háskólasjúkrahús í vetrarríki, febrúar 2002....