Sólin Sólin Rís 07:52 • sest 18:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:56 • Sest 17:43 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:59 • Síðdegis: 20:11 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:51 • Síðdegis: 14:13 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvernig varð heimurinn til?

JGÞ

Vísindamenn vita ýmislegt um það hvernig heimurinn varð til. Alheimurinn er alltaf að þenjast út og ljóst er að í fortíðinni lá allt efni í alheiminum miklu þéttar saman.

Á fyrstu augnablikum alheimsins var efnið í honum óendanlega þétt. Vísindamenn telja að þetta frumástand alheimsins hafi byrjað að þenjast út í atburði sem hefur verið nefndur Miklihvellur.

Svo virðist sem Miklihvellur hafi orðið fyrir um 13,5 milljörðum ára, þó að erfitt sé að ákvarða þá tölu nákvæmlega.

Hægt er að lesa meira um þetta í svari við spurningunni Hvernig varð alheimurinn til? Einnig er gagnlegt að setja orðið Miklihvellur inn í leitarvél Vísindavefsins.

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

30.3.2006

Spyrjandi

Dagrún Linda Barkardóttir, f. 1992

Efnisorð

Tilvísun

JGÞ. „Hvernig varð heimurinn til?“ Vísindavefurinn, 30. mars 2006, sótt 6. október 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=5758.

JGÞ. (2006, 30. mars). Hvernig varð heimurinn til? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=5758

JGÞ. „Hvernig varð heimurinn til?“ Vísindavefurinn. 30. mar. 2006. Vefsíða. 6. okt. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=5758>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvernig varð heimurinn til?
Vísindamenn vita ýmislegt um það hvernig heimurinn varð til. Alheimurinn er alltaf að þenjast út og ljóst er að í fortíðinni lá allt efni í alheiminum miklu þéttar saman.

Á fyrstu augnablikum alheimsins var efnið í honum óendanlega þétt. Vísindamenn telja að þetta frumástand alheimsins hafi byrjað að þenjast út í atburði sem hefur verið nefndur Miklihvellur.

Svo virðist sem Miklihvellur hafi orðið fyrir um 13,5 milljörðum ára, þó að erfitt sé að ákvarða þá tölu nákvæmlega.

Hægt er að lesa meira um þetta í svari við spurningunni Hvernig varð alheimurinn til? Einnig er gagnlegt að setja orðið Miklihvellur inn í leitarvél Vísindavefsins. ...