Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Úr hverju er hláturgas?

JGÞ

Hláturgas eða glaðgas kallast díniturmónoxíð á máli efnafræðinnar og hefur efnatáknið N2O. Sameind þess (e. molecule) er mynduð úr einni súrefnisfrumeind (O) og tveimur niturfrumeindum (N; hefur einnig verið kallað köfnunarefni á íslensku).

Efnið var fyrst búið til árið 1776 og framan af notað til svæfinga. Um miðja 19. öld var það fyrst notað af tannlæknum við aðgerðir.

Nú er það notað á sjúkrahúsum með því að blanda yfirmagni af súrefni við það og þá er það algjörlega skaðlaust. Það er til að mynda oft notað við deyfingu mæðra í hríðum.

Hægt er að lesa meira um glaðgas í svari Sigríðar Jónsdóttur við spurningunni Er sameindin N2O til?

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

5.4.2006

Spyrjandi

Viktor Snær, f. 1992, Konráð Valur Sveinsson, f. 1996

Tilvísun

JGÞ. „Úr hverju er hláturgas?“ Vísindavefurinn, 5. apríl 2006. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=5791.

JGÞ. (2006, 5. apríl). Úr hverju er hláturgas? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=5791

JGÞ. „Úr hverju er hláturgas?“ Vísindavefurinn. 5. apr. 2006. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=5791>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Úr hverju er hláturgas?
Hláturgas eða glaðgas kallast díniturmónoxíð á máli efnafræðinnar og hefur efnatáknið N2O. Sameind þess (e. molecule) er mynduð úr einni súrefnisfrumeind (O) og tveimur niturfrumeindum (N; hefur einnig verið kallað köfnunarefni á íslensku).

Efnið var fyrst búið til árið 1776 og framan af notað til svæfinga. Um miðja 19. öld var það fyrst notað af tannlæknum við aðgerðir.

Nú er það notað á sjúkrahúsum með því að blanda yfirmagni af súrefni við það og þá er það algjörlega skaðlaust. Það er til að mynda oft notað við deyfingu mæðra í hríðum.

Hægt er að lesa meira um glaðgas í svari Sigríðar Jónsdóttur við spurningunni Er sameindin N2O til?...