Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Er þyngdarafl á Mars?

ÍDÞ

Já, það er þyngdarafl á Mars!

Í svari JGÞ og ÞV við spurningunni: Hvers vegna er þyngdarafl á jörðinni en ekki á tunglinu? kemur fram:

Sérhver hlutur sem hefur massa verkar á aðra massa með þyngdarkrafti, sem er hins vegar mismikill eftir því hve mikill massi upphaflega hlutarins er og eftir því hversu langt við erum frá miðju hans. Þyngdarkraftur verkar því á tunglinu alveg eins og á jörðinni. Eini munurinn er sá að þyngdarkrafturinn á tiltekinn hlut á tunglinu er miklu minni en á sama hlut á jörðinni og hluturinn virðist því léttari þar en við yfirborð jarðar.

Að sama skapi getum við sagt að þyngdarkraftur verkar á Mars alveg eins og á jörðinni.

Samanburður á stærð jarðarinnar og Mars.

Tvennt hefur áhrif á stærð þyngdarkraftsins. Annars vegar er þyngdarkraftur í réttu hlutfalli við massa hlutarins eða efnismagn og hins vegar minnkar þyngdarkraftur með vaxandi fjarlægð frá miðju hans. Mars hefur minni massa en jörðin en það gefur okkur að þyngdarkrafturinn sé minni. Aftur á móti er Mars einnig minni pláneta en eins og segir að ofan minnkar þyngdarkraftur með vaxandi fjarlægð frá miðju hans. Þannig vegur það upp á móti minni massa.

En ef við tökum þetta tvennt í reikninginn og látum þyngdartog, það er hversu mikið þyngdarflið togar í okkur, á jörðinni vera 1, þá er þyngdartog Mars 0,38. Þyngdaraflið á Mars er þannig 38% af þyngdarafli jarðar. 100 kg maður á jörðinni væri þannig 38 kg á Mars!

Frekara lesefni og heimildir á Vísindavefnum:

Mynd:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Útgáfudagur

5.4.2011

Spyrjandi

Jón Arnar Björnsson, f. 1995

Tilvísun

ÍDÞ. „Er þyngdarafl á Mars?“ Vísindavefurinn, 5. apríl 2011. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=59249.

ÍDÞ. (2011, 5. apríl). Er þyngdarafl á Mars? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=59249

ÍDÞ. „Er þyngdarafl á Mars?“ Vísindavefurinn. 5. apr. 2011. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=59249>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Er þyngdarafl á Mars?
Já, það er þyngdarafl á Mars!

Í svari JGÞ og ÞV við spurningunni: Hvers vegna er þyngdarafl á jörðinni en ekki á tunglinu? kemur fram:

Sérhver hlutur sem hefur massa verkar á aðra massa með þyngdarkrafti, sem er hins vegar mismikill eftir því hve mikill massi upphaflega hlutarins er og eftir því hversu langt við erum frá miðju hans. Þyngdarkraftur verkar því á tunglinu alveg eins og á jörðinni. Eini munurinn er sá að þyngdarkrafturinn á tiltekinn hlut á tunglinu er miklu minni en á sama hlut á jörðinni og hluturinn virðist því léttari þar en við yfirborð jarðar.

Að sama skapi getum við sagt að þyngdarkraftur verkar á Mars alveg eins og á jörðinni.

Samanburður á stærð jarðarinnar og Mars.

Tvennt hefur áhrif á stærð þyngdarkraftsins. Annars vegar er þyngdarkraftur í réttu hlutfalli við massa hlutarins eða efnismagn og hins vegar minnkar þyngdarkraftur með vaxandi fjarlægð frá miðju hans. Mars hefur minni massa en jörðin en það gefur okkur að þyngdarkrafturinn sé minni. Aftur á móti er Mars einnig minni pláneta en eins og segir að ofan minnkar þyngdarkraftur með vaxandi fjarlægð frá miðju hans. Þannig vegur það upp á móti minni massa.

En ef við tökum þetta tvennt í reikninginn og látum þyngdartog, það er hversu mikið þyngdarflið togar í okkur, á jörðinni vera 1, þá er þyngdartog Mars 0,38. Þyngdaraflið á Mars er þannig 38% af þyngdarafli jarðar. 100 kg maður á jörðinni væri þannig 38 kg á Mars!

Frekara lesefni og heimildir á Vísindavefnum:

Mynd:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....