Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Ég veit hvað ófreskja er, en hvað er þá freskja?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Orðið ófreskja merkir í nútímamáli ‛skrímsli, óvættur’ en hafði í fornu máli einnig merkinguna ‛skyggnigáfa’. Nafnorðið ófreski merkir ‛skyggni, skyggnigáfa‛ og lýsingarorðið ófreskur ‛skyggn, sá sem sér það sem öðrum er hulið’. Lýsingarorðið freskur merkir þá ‛óskyggn’.

Ekki var sama þörf fyrir að persónugera þann sem var 'freskur' og þann sem var 'ófreskur' eða skyggn. Hér sést höfuð ófreskjunnar Medúsu.

Ófreskja fékk vissulega merkinguna ‛skrímsli, óvættur’ ef til vill vegna þess að ýmsum hefur ekki hugnast það að einhverjir sæju það sem aðrir sáu ekki. Ekki var sama þörf fyrir að persónugera þann sem var freskur og eru því ekki dæmi um orðið freskja.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

1.11.2011

Spyrjandi

Sóley Karlsdóttir, f. 2002

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Ég veit hvað ófreskja er, en hvað er þá freskja?“ Vísindavefurinn, 1. nóvember 2011, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=60226.

Guðrún Kvaran. (2011, 1. nóvember). Ég veit hvað ófreskja er, en hvað er þá freskja? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=60226

Guðrún Kvaran. „Ég veit hvað ófreskja er, en hvað er þá freskja?“ Vísindavefurinn. 1. nóv. 2011. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=60226>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...