Sólin Sólin Rís 08:16 • sest 18:10 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 18:07 • Sest 02:31 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:06 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:58 • Síðdegis: 22:28 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað eru margir menn til í heiminum?

EDS

Áður en spurningunni verður svarað er rétt að hafa í huga að við getum aldrei vitað nákvæmlega hversu margir búa í heiminum vegna þess að tölur um fólksfjölda í flestum löndum heims eru áætlaðar eins og hægt er að lesa um í svari við spurningunni Hvar er hægt að finna upplýsingar um hversu margir búa í tilteknu landi? Hversu nærri lægi áætlanirnar eru fer svo allt eftir aðstæðum og þeim forsendum sem notaðar eru hverju sinni.

Hins vegar eru margir staðir á Veraldarvefnum þar sem hægt er að finna upplýsingar um áætlaðan mannfjölda í heiminum. Með því að smella hér má til dæmis sjá töflu þar sem er stöðug talning. Þegar þetta er skrifað, 9. október 2006 kl. 13:00, sýnir taflan til dæmis að mannkynið er talið vera 6.654.865.555.

Ef þú smellir núna hefur talan hækkað eitthvað þar sem að meðaltali fæðast rúmlega 4 börn á hverri sekúndu einhvers staðar í heiminum á sama tíma og tæplega tveir deyja eins og lesa má í svari við spurningunni Fæðast börn um allan heim á hverri sekúndu eins og sagt er?

Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

9.10.2006

Spyrjandi

Silja Þorbjörg, f. 1996
Ingibjörg Eva, f. 1996

Tilvísun

EDS. „Hvað eru margir menn til í heiminum?“ Vísindavefurinn, 9. október 2006, sótt 14. október 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=6278.

EDS. (2006, 9. október). Hvað eru margir menn til í heiminum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=6278

EDS. „Hvað eru margir menn til í heiminum?“ Vísindavefurinn. 9. okt. 2006. Vefsíða. 14. okt. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=6278>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað eru margir menn til í heiminum?
Áður en spurningunni verður svarað er rétt að hafa í huga að við getum aldrei vitað nákvæmlega hversu margir búa í heiminum vegna þess að tölur um fólksfjölda í flestum löndum heims eru áætlaðar eins og hægt er að lesa um í svari við spurningunni Hvar er hægt að finna upplýsingar um hversu margir búa í tilteknu landi? Hversu nærri lægi áætlanirnar eru fer svo allt eftir aðstæðum og þeim forsendum sem notaðar eru hverju sinni.

Hins vegar eru margir staðir á Veraldarvefnum þar sem hægt er að finna upplýsingar um áætlaðan mannfjölda í heiminum. Með því að smella hér má til dæmis sjá töflu þar sem er stöðug talning. Þegar þetta er skrifað, 9. október 2006 kl. 13:00, sýnir taflan til dæmis að mannkynið er talið vera 6.654.865.555.

Ef þú smellir núna hefur talan hækkað eitthvað þar sem að meðaltali fæðast rúmlega 4 börn á hverri sekúndu einhvers staðar í heiminum á sama tíma og tæplega tveir deyja eins og lesa má í svari við spurningunni Fæðast börn um allan heim á hverri sekúndu eins og sagt er?

Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....