Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Vísindavefurinn og Landsvirkjun vinna saman að miðlun vísinda til almennings

Ritstjórn Vísindavefsins

Vísindavefur Háskóla Íslands og Landsvirkjun hafa undirritað samning um samstarf á sviði vísindamiðlunar. Með samstarfinu vilja Vísindavefurinn og Landsvirkjun stuðla að vandaðri og nútímalegri fræðslu um vísindi handa almenningi. Samningurinn felur meðal annars í sér miðlun Landsvirkjunar á úrvali svara Vísindavefsins um orku og orkumál í fræðsluskyni. Báðir samningsaðilar hafa áhuga á að þróa samstarfið frekar á komandi misserum.

Á meðal spurninga sem almennir lesendur hafa sent Vísindavefnum um orkumál má til dæmis nefna: Hvernig varð rafmagn til? Hvernig framleiðir hrökkáll rafmagn? Er hægt að sjá eitt atóm eða eina rafeind? Hvernig er hægt að geyma og nýta orku frá vindrafstöðvum? og Er hægt að framleiða rafmagn með grænmeti eða ávöxtum?

Jón Gunnar Þorsteinsson, ritstjóri Vísindavefsins, og Ragna Sara Jónsdóttir, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar,
við undirritunina.

Vísindavefur Háskóla Íslands hefur starfað frá árinu 2000 og notið mikilla vinsælda. Á vefnum er að finna þúsundir svara við spurningum almennings um allt milli himins og jarðar, allt frá stjörnufræði til handrita og frá sameindalíffræði til sálarfræði. Duglegustu spyrjendurnir eru yfirleitt á aldrinum 10-20 ára.

Vísindavefurinn hefur reynslu af fjölbreyttu starfi sem tengist vísindamiðlun, til dæmis námskeiðahaldi um vísindi fyrir fjölskyldur, bókaútgáfu um vísindi og gerð vísindadagatals, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar. Fyrirtækið vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli og jarðvarma. Landsvirkjun vinnur 75% allrar raforku í landinu og er stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi. Landsvirkjun er leiðandi í sjálfbærri nýtingu orkugjafa og leggur áherslu á að stuðla að aukinni þekkingu, nýsköpun og tækniþróun.

Útgáfudagur

31.3.2011

Spyrjandi

Ritstjórn

Efnisorð

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Vísindavefurinn og Landsvirkjun vinna saman að miðlun vísinda til almennings.“ Vísindavefurinn, 31. mars 2011. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=70854.

Ritstjórn Vísindavefsins. (2011, 31. mars). Vísindavefurinn og Landsvirkjun vinna saman að miðlun vísinda til almennings. Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=70854

Ritstjórn Vísindavefsins. „Vísindavefurinn og Landsvirkjun vinna saman að miðlun vísinda til almennings.“ Vísindavefurinn. 31. mar. 2011. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=70854>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Vísindavefurinn og Landsvirkjun vinna saman að miðlun vísinda til almennings
Vísindavefur Háskóla Íslands og Landsvirkjun hafa undirritað samning um samstarf á sviði vísindamiðlunar. Með samstarfinu vilja Vísindavefurinn og Landsvirkjun stuðla að vandaðri og nútímalegri fræðslu um vísindi handa almenningi. Samningurinn felur meðal annars í sér miðlun Landsvirkjunar á úrvali svara Vísindavefsins um orku og orkumál í fræðsluskyni. Báðir samningsaðilar hafa áhuga á að þróa samstarfið frekar á komandi misserum.

Á meðal spurninga sem almennir lesendur hafa sent Vísindavefnum um orkumál má til dæmis nefna: Hvernig varð rafmagn til? Hvernig framleiðir hrökkáll rafmagn? Er hægt að sjá eitt atóm eða eina rafeind? Hvernig er hægt að geyma og nýta orku frá vindrafstöðvum? og Er hægt að framleiða rafmagn með grænmeti eða ávöxtum?

Jón Gunnar Þorsteinsson, ritstjóri Vísindavefsins, og Ragna Sara Jónsdóttir, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar,
við undirritunina.

Vísindavefur Háskóla Íslands hefur starfað frá árinu 2000 og notið mikilla vinsælda. Á vefnum er að finna þúsundir svara við spurningum almennings um allt milli himins og jarðar, allt frá stjörnufræði til handrita og frá sameindalíffræði til sálarfræði. Duglegustu spyrjendurnir eru yfirleitt á aldrinum 10-20 ára.

Vísindavefurinn hefur reynslu af fjölbreyttu starfi sem tengist vísindamiðlun, til dæmis námskeiðahaldi um vísindi fyrir fjölskyldur, bókaútgáfu um vísindi og gerð vísindadagatals, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar. Fyrirtækið vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli og jarðvarma. Landsvirkjun vinnur 75% allrar raforku í landinu og er stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi. Landsvirkjun er leiðandi í sjálfbærri nýtingu orkugjafa og leggur áherslu á að stuðla að aukinni þekkingu, nýsköpun og tækniþróun....