Sólin Sólin Rís 10:31 • sest 15:59 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:06 • Síðdegis: 19:32 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:53 • Síðdegis: 13:28 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða dálkur er þetta þegar einhver er daufur í dálkinn?

Guðrún Kvaran

Upprunalega spurningin var:

Hvernig er hægt að vera daufur í dálk? Hvaða dálkur er þetta?

Orðasambandið að vera daufur í dálkinn merkir ‘að vera hryggur’ og þekkist vel allt frá miðri 19. öld. Dálkur hefur fleiri en eina merkingu, eins og til dæmis lesmálslengja í bók eða blaði, grennra beinið í fótlegg, rýtingur, … en hér er átt við fiskhrygg. Daufur merkir hér ‘bragðlítill, lítið saltaður’. Halldór Halldórsson prófessor segir í doktorsriti sínu frá 1954:

Líkingin er þannig dregin af lítt söltuðum fiski.

Sama skýring er í Mergi málsins eftir Jón G. Friðjónsson (2006:137).

Heimildir og mynd:
  • Halldór Halldórsson.1954. Íslensk orðtök. Drög að rannsóknum á myndhverfum orðtökum í íslenzku. Bls. 149. Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík.
  • Ritmálssafn Orðabókar Háskólans. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. https://ritmalssafn.arnastofnun.is
  • Yfirlitsmynd: Magnús Ólafsson: Ljósmyndasafn Reykjavíkur - Flickr. (Sótt 24.11.2026).

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

26.11.2026

Spyrjandi

Örn

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaða dálkur er þetta þegar einhver er daufur í dálkinn?“ Vísindavefurinn, 26. nóvember 2026, sótt 26. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=81478.

Guðrún Kvaran. (2026, 26. nóvember). Hvaða dálkur er þetta þegar einhver er daufur í dálkinn? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=81478

Guðrún Kvaran. „Hvaða dálkur er þetta þegar einhver er daufur í dálkinn?“ Vísindavefurinn. 26. nóv. 2026. Vefsíða. 26. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=81478>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...