Sólin Sólin Rís 08:18 • sest 18:08 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:45 • Síðdegis: 21:01 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:28 • Síðdegis: 15:01 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Upp á hvaða skaft er verið að færa sig?

Guðrún Kvaran

Öll spurningin hljóðaði svona:

„Að færa sig upp á skaftið“. Þetta þekki ég vel og nota, en hver er myndlíkingin? Upp á hvaða skaft er betra að geta fært sig til að það þjóni betur einhverju?

Orðasambandið að færa sig upp á skaftið merkir ‘verða ágengari en áður; færa út kvíarnar’. Elstu dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru frá 18. öld, t.d. þetta úr Kvöldvökum Hannesar Finnssonar:

loksins færði hún og nunnur hennar sig svo upp á skaptið.

Fræðimenn eru ekki sammála um hvernig orðtakið er hugsað. Halldór Halldórsson, sem gaf út ritið Íslenzkt orðtakasafn (1969 II: 110) segir að sumir telji það dregið af bardaga með spjótum og merki í raun „færa hendurnar lengra upp á spjótskaftið til þess að komast nær andstæðingnum“ (sami höfundur 1954:321).

Jón G. Friðjónsson er með aðrar skýringar í riti sínu Mergur málsins. Hann segir: „Líkingin er óljós, e.t.v. dregin af leik sem fólst í því að menn gripu á víxl um skaft eða prik og vann sá sem náði endanum. Önnur skýring og sennilegri er sú að er menn vinna t.d. með sleggju færa þeir sig upp á skaftið til að ná traustu taki.“

Heimildir og mynd:
  • Halldór Halldórsson. 1954. Íslenzk orðtök. Drög að rannsóknum á myndhverfum orðtökum í íslenzku. Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík.
  • Halldór Halldórsson. 1969. Íslenzkt orðtakasafn. II L–Ö, 109–110. Almenna bókafélagið, Reykjavík.
  • Jón G. Friðjónsson. 2006. Mergur málsins. Íslensk orðatiltæki. Uppruni, saga og notkun. Mál og menning, Reykjavík.
  • Ritmálssafn Orðabókar Háskólans. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. https://ritmalssafn.arnastofnun.is
  • Yfirlitsmynd: Ahlschwede, D. (2001, 14. ágúst). US Air Force (USAF) SENIOR AIRMAN (SRA) Rafael Marrero-Rivera, 603rd Air Control Squadron uses a sledge hammer to drive posts at the initial set up site for the North Atlantic Treaty Organization (NATO) training Exercise, TACTICAL FIGHTER WEAPONTRY 01, at Lemvig, Denmark. National Archives and Records Administration. https://catalog.archives.gov/id/6599676

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

15.10.2026

Spyrjandi

Hermann Hermannsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Upp á hvaða skaft er verið að færa sig?“ Vísindavefurinn, 15. október 2026, sótt 15. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=83349.

Guðrún Kvaran. (2026, 15. október). Upp á hvaða skaft er verið að færa sig? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=83349

Guðrún Kvaran. „Upp á hvaða skaft er verið að færa sig?“ Vísindavefurinn. 15. okt. 2026. Vefsíða. 15. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=83349>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...