Sólin Sólin Rís 05:24 • sest 21:30 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 10:45 • Sest 05:29 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 12:19 • Síðdegis: 24:55 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 06:05 • Síðdegis: 18:24 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hví er „hví“ ekki notað lengur?

Guðrún Kvaran

Öll spurningin hljóðaði svona:

Hví er „hví“ ekki notað lengur? Hvers vegna segjum við frekar „hvers vegna“ eða „af hverju“?

Hví er upphaflega þágufallsmynd af spurnarfornafninu hvat ‘hvað’ í fornu máli. Það beygðist:
Nf. hvat
Þf. hvat
Þgf. hvi
Ef. hves(s)

Sem atviksorð fær það merkinguna ‘hvers vegna’ og var algengt í fornu máli og fram eftir öldum. Í raun allt til dagsins í dag þótt það sé sjaldgæft nú. Örlög þess eru hin sömu og fjölmargra annarra orða að þau úreldast, þykja gamaldags og önnur taka við. Í þessu tilviki hvers vegna og af hverju. Hví heyrist og sést þó stöku sinnum í hátíðlegu máli.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

24.4.2026

Spyrjandi

Hafsteinn Óskar

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hví er „hví“ ekki notað lengur?“ Vísindavefurinn, 24. apríl 2026, sótt 24. apríl 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=87545.

Guðrún Kvaran. (2026, 24. apríl). Hví er „hví“ ekki notað lengur? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87545

Guðrún Kvaran. „Hví er „hví“ ekki notað lengur?“ Vísindavefurinn. 24. apr. 2026. Vefsíða. 24. apr. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87545>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...