Getið þið frætt okkur um uppruna orðsins „askvaðandi“. Ekki var það þannig hér áður fyrr, að fólk væri vaðandi í öskunum sínum, eða hvað?Lýsingarorðið askvaðandi merkir ‘þjótandi, með fyrirgangi’, til dæmis „hann kom askvaðandi og skellti hurðum“. Ritmálssafn Orðabókar Háskólans hefur elstu dæmi frá miðri 20. öld, til dæmis úr ævisögu séra Árna Þórarinssonar eftir Þórberg Þórðarson:
hann [þe: Guðmundur] sér, að maður kemur askvaðandi framan að hestinum.Elsta dæmið um askvaðandi á leitarvefnum Tímarit.is er úr Alþýðublaðinu frá 1921. Önnur orð með sama forlið eru til dæmis askmalandi ‘öslandi, með fyrirgangi’ askveður og askviðri ‘snjóbylur, skafrenningur’. Forliðurinn hefur verið tengdur nafnorðinu aska ‘duftkenndar leifar eftir bruna’ sem þyrlast upp ef komið er að með fyrirgangi. Sögnin að vaða merkir fyrir utan að ‘ösla í vatni’ að ‘ryðjast áfram’ eins og í askvaðandi. Vel má sjá fyrir sér einhvern sem kemur inn með fyrirgangi þannig að til dæmis blöð og pappírar þyrlist upp líkt og aska í öskustó. Heimildir og mynd:
- Ritmálssafn Orðabókar Háskólans. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. https://ritmalssafn.arnastofnun.is/
- Tímarit.is. https://timarit.is/
- Yfirlitsmynd: Erik Werenskiold. (líklega fyrir 1885). When no more than the Last Thread was left, the Troll-hags came rushing up and made a Grab at the End. Look and Learn. Birt undir CC BY 4.0 leyfi. https://www.lookandlearn.com/history-images/YNO3025508/When-no-more-than-the-Last-Thread-was-left-the-Troll-hags-came-rushing-up-and-made-a-Grab-at-the-End. (Sótt 13.02.2026).