Sólin Sólin Rís 09:27 • sest 16:55 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 05:44 • Sest 15:54 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:20 • Síðdegis: 16:32 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:29 • Síðdegis: 22:47 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaðan eru orðin apaskinn og apaskinnsgalli komin og af hverju fékk klæðnaðurinn þetta heiti?

Guðrún Kvaran

Í heild hljóðaði spurningin svona:
Þegar við nokkrir vinir vorum að rifja upp þegar við vorum unglingar og allir áttu apaskinnsgalla þá fórum við að velta fyrir okkur hvaðan þetta orð er komið. Efnið í göllunum líktist rúskinni en okkur finnst áferðin samt ekkert minna á apa. Við fórum því að velta fyrir okkur hvernig þetta orð varð til og hvaðan það er komið. Veit einhver svarið við því?

Svokallað apaskinn fór að verða vinsælt skömmu fyrir miðja 20. öld og var einkum notað í jakka en einnig í kápur, síðbuxur í ýmsum litum, hálfsíðar buxur á stráka, galla á börn og jafnvel töskur. Það er ekki skinn af apa heldur efni unnið á sérstakan hátt. Væri það vel unnið gat það næstum jafnast á við rúskinnsflík.

Í Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans er dæmi frá Elsu E. Guðjónsson textílfræðingi frá 1953:

Þétt efni, ýft á annað borðið.

Annað dæmi frá Elsu er:

Sum efni eru ekki flosofin, heldur ýfð, eins og t.d. apaskinn.

Allmörg dæmi er einnig að finna á timarit.is, einkum í auglýsingum. Apaskinnið minnir á skinn á sumum apategundum og þaðan kemur nafnið.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

6.11.2026

Spyrjandi

Sigríður Guðjónsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan eru orðin apaskinn og apaskinnsgalli komin og af hverju fékk klæðnaðurinn þetta heiti?“ Vísindavefurinn, 6. nóvember 2026, sótt 6. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88462.

Guðrún Kvaran. (2026, 6. nóvember). Hvaðan eru orðin apaskinn og apaskinnsgalli komin og af hverju fékk klæðnaðurinn þetta heiti? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88462

Guðrún Kvaran. „Hvaðan eru orðin apaskinn og apaskinnsgalli komin og af hverju fékk klæðnaðurinn þetta heiti?“ Vísindavefurinn. 6. nóv. 2026. Vefsíða. 6. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88462>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvaðan eru orðin apaskinn og apaskinnsgalli komin og af hverju fékk klæðnaðurinn þetta heiti?
Í heild hljóðaði spurningin svona:

Þegar við nokkrir vinir vorum að rifja upp þegar við vorum unglingar og allir áttu apaskinnsgalla þá fórum við að velta fyrir okkur hvaðan þetta orð er komið. Efnið í göllunum líktist rúskinni en okkur finnst áferðin samt ekkert minna á apa. Við fórum því að velta fyrir okkur hvernig þetta orð varð til og hvaðan það er komið. Veit einhver svarið við því?

Svokallað apaskinn fór að verða vinsælt skömmu fyrir miðja 20. öld og var einkum notað í jakka en einnig í kápur, síðbuxur í ýmsum litum, hálfsíðar buxur á stráka, galla á börn og jafnvel töskur. Það er ekki skinn af apa heldur efni unnið á sérstakan hátt. Væri það vel unnið gat það næstum jafnast á við rúskinnsflík.

Í Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans er dæmi frá Elsu E. Guðjónsson textílfræðingi frá 1953:

Þétt efni, ýft á annað borðið.

Annað dæmi frá Elsu er:

Sum efni eru ekki flosofin, heldur ýfð, eins og t.d. apaskinn.

Allmörg dæmi er einnig að finna á timarit.is, einkum í auglýsingum. Apaskinnið minnir á skinn á sumum apategundum og þaðan kemur nafnið.

Heimildir og mynd:...